Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 22
an kaupsýslumann í Höfn, eins og hann hafði gert sér vonir um, áður en hann varð gjaldþrota. Þetta var einnig ósk sölunefndar, sem enn var fús til að liðsinna Hölter á margvíslegan hátt, enda var það meðal annars tilgangur hennar með bráðabirgða- ráðstöfununum varðandi verzlunina að gera honum kleift að fá umráð yfir henni að nýju. Eins og áður var sagt, voru það fleiri en kon- ungssjóður, sem áttu kröfur á hendur Hölter, og fyrr en honum hefði tekizt að ná viðunandi samn- ingum við þá, taldi sölunefnd sig ekki geta beðið konung að veita honum neinar ívilnanir. Nú var kunnugt, að eignir Hölters, ef seldar væru, myndu ekki einu sinni hrökkva fyrir skuldunum við kon- ungssjóð, og reyndi liann því þegar árið 1803 að fá þá einkaaðila, sem kröfur áttu á hendur honum, til að falla frá hluta af þeim. Við flesta kröfuhafana náðust þó engir samningar að sinni, nema við Sehött og Herlew, sem féllu fúslega frá öllum kröfum á liendur Hölter, er sölunefnd veitti þeim í staðinn eftirgjöf á fyrrnefndri sjálfskuldarábvrgð þeirra. En þá eftirgjöf taldi sölunefnd sjálfsagt að veita þeim, þar eð ekkert var af þeim að liafa hvort sem var. Að öðru leyti átti Hölter í þjarki við suma af þess- um lánardrottnum sínum fram á vor 1806, er þeir virtust ætla að gera sér að góðu að fá 25% af kröf- um sínum. Þessi ár var verzlunin í Stykkishólmi rekin með sama sniði og komst á hana vorið 1803, þ. e. a. s. að sölunefnd annaðist fjárhagslegu hliðina en Hölt- er framkvæmdina í samvinnu við Hjorth. Þessari verzlun var sniðinn heldur þröngur st.akkur, þar eð aðeins eitt skip, fór árlega með vörur til Stykkis- hólms. Og ef inn komu meiri íslenzkar útflutnings- vörur en komust í þetta eina skip, sem oftast var, nevddist Hölter til að semja við einhvern nágranna- kaupmann eða lausakaupmann að taka afganginn utan. Þrátt fyrir þetta urðu samt nokkru meiri tekjur af verzluninni en þurfti til hins árlega reksturs, svo að eitthvað varð afgangs upp í skuldir Hölters við konungssjóð. í bréfum sínum til sölunefndar í árs- byrjun 1806 var hann vongóður um, að úr myndi rætast fyrir sér, ef hann fengi nú full umráð yfir verzluninni aftur og væga afborgunarskilmála. Taldi hann heppilegast, að allar skuldirnar, sem viru mis- jafnlega gamlar, yrðu set.tar á eitt skuldabréf og vonaðist eftir að fá einhverja eftirgjöf á vöxtum þeim, sem smám saman höfðu bætzt ofan á þær. Sölunefnd virðist hafa verið mjög tilleiðanleg að Danskt millilandaskip um næstsíðustu aldamót semja við Hölter á þennan liátt, enda var nú útlit á að liann næði loksins samningum við aðra lánar- drottna sína, eins og fyrr segir. En ekki vannst tími til að gera út um málið áður en að þvi kom að búa skipið til íslandsferðar, og var því ákveðið að láta allt sitja við hið sama, þar til Hölter kæmi frá Islandi um haustið. Sjóslysið við Þorlákshöfn vorið 1906 Hölter sigldi frá Kaupmannahöfn áleiðis til Stykkishólms 29. apríl 1800 á galíasskipinu Önnu, sem var 44 stórlestir og fullhlaðið vörum. Byr var hagstæður mestan hluta leiðarinnar upp undir ís- land, og höfðu skipverjar landsýn um hádegi þann 17. maí. Klukkan 4 sama dag var siglt fram hjá Geirfuglaskeri, en eftir það tók að þykkna mjög í lofti og skall brátt á dimmviðri, svo að þeir misstu alla landsýn. Skipið var þá enn statt djúpt undan landi, og með því að skipverjar inunu ])á hafa talið sig eiga skamma leið eftir vestur á móts við Reykja- nes, tóku þeir mjög norðlæga stefnu. Segir nú ekki af ferðum þeirra fyrr en um miðnætti, er skipið var skyndilega statt í brimgarði, og áður en varði tók það niðri og byrjaði að fyllast af sjó. Skipverjar höfðu þá ekki annað úrræði sér til bjargar en leita hælis í stórsiglunni, og komust þeir þangað allir nema Hölter, sem treysti sér ekki án hjálpar. En þar sem hver átti nóg með sjálfan sig, tókst ekki að veita honum neina aðstoð, og drukknaði hann þarna. Öðrum þeim, sem á skipinu voru, tókst að halda lífi um nóttina, og daginn eftir barst hjálp úr landi. Reyndist skipið þá vera strandað við Hafnar- skeið. Nokkrum dögum seinna hélt Steindór Finns- FR.TÁI.S VERZIjUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.