Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 5
Rætt viS Óttar Möller forstjóra Eimskipafélag íslands stefnir að aukinni og endurbœttri þjónustu „Það er ekkert á móti því að segja lesendum Frjálsrar verzlunar eitthvað um Eimskipafélagið og starf þess. Eiginlega hefir verið allhljótt um það undanfarin ár. Eg held, að almenningur viti satt að segja ekki mikið um félagið, enda ]>ótt ]>að hafi alla tíð verið almenningseign.“ Nýlega tók ungur maður við stjórn Eimskipa- félags íslands, Ótt.ar Möllar, og svona fórust hon- um orð, er fréttamaður Frjálsrar verzlunar bað hann um viðtal á dögunum. Óttar hefur starfað i mörg ár hjá Eimskip, og síðast sem fulltrúi, áður en hann varð forstjóri. Unga fó'kið veit of lítið um Eimskip — Teljið þér þá, að íslendingar yfirleitt séu harla fáfróðir um „óskabarn þjóðarinnar"? — Einkum á ég við ungu kynslóðina, sem veit allt of lítið um aðdraganda og hlutverk félagsins. Þess vegna er ekki við því að búast, að unga fólkið leggi ]>að mat á starf félagsins, sem það ella myndi gera. Hvað er að gerast hjá Eimskip? spvrja menn. Eða: Hvers vegna er ekki lui'gt að gera þetta eða hitt? Eldra fólkið lítur flest öðrum augum á starfið en unga kynslóðin. Nýlega barst okkur t. d. bréf frá bónda norðanlands, einn þeirra mörgu, er lögðu hönd á plóginn til að koma Eimskipafélaginu á fót. Þessi ágœti bóndi segir, að með stofnun E. í. hafi verið st.igið stærsta skrefið til að tengja saman fólkið í landinu, brúa bil milli einangraðra byggða, þá hafi íslendingar staðið saman. Siðan hafi felagið unnið það verk, sem því var ætlað, að flytja lífs- björg að allri strönd Islands. Þetta bréf sýnir ein- mitt hugsunarhátt eldra fólksins, hugarþel ]>ess í garð Eimskipafélagsins, sem það gerði að veruleika með því að láta fé af hendi rakna, lítið frá hverjum einstökum, cn mikið þegar saman kom. Stofnendur Eimskips voru landsmenn úr öllum bygðgarlögum, stéttum og stjórnmálaflokkum. Þeir fjölmörgu Is- lendingar, sem fyrstir gerðust hluthafar í Eimskip, gerðu það ekki til að auðgast á því, heldur til að sjá hugsjón verða að veruleika. Þá dettur mér enn í hug annað, sem bóndinn sagði í bréfi sínu, að félagið geri öllum jafnhátt undir höfði og hafi gegnt þjónustuhlutverki sínu dyggilega frá upphafi. Þáttaskil eftir stríðið — En hafa orðið breytingar á viðhorfi fólksins til félagsins? — Með stofnun félagsins gerði almenningur sér ljóst, að með því var verið að stíga skref til að gera þjóðina sjálfstæðari en hún hafði árið verið. Eftir heimsstyrjöldina síðari urðu nokkur 'pátta- skil. Aður hafði Eimskipafélagið eitt annazt svo að segja allar siglingar og vöruflutninga til landsins frá útlöndum. En eftir seinna stríðið koma óvæntir keppinautar til skjalanna. Þá fara framleiðendur og verzlunarfyrirtæki að reka skij> á sama sviði og Eimskip hafði eitt gert áður. Þetta var ekki heppi- legt að niínu áliti, og því fylgir í rauninni einok- unarhætta. Samkeppni er að sönnu sjálfsögð. En ég tel það skilyrði fyrir frjálsri verzlun, að sérstakir aðilar annist siglingar eingöngu, án beinna tengsla við einstaka atvinnuvegi aðra. Nú er svo komið, Gullíoss FRJÁLS VEHZLUN Ö

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.