Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 28
Sigfús tæki að sér að veita fyrirgreiðsluna en að In'm Icnti í höndum cinhverra annarra. Sigfús lét af störfum hjá norsk-íslenzka félaginu árið 1871 og stofnaði bókaverzlunina ári síðar, fyrst í stað í smáum stíl svo sem eðlilcgt er. En fyrir- tækinu óx jafnt og þétt fiskur um hrygg, þegar fram liðu stundir. Fyrsta blaðaauglýsingin frá Bókaverzlun Sigfús- ar Eymundssonar birtist þann 3. janúar 1873. Sam- kvæmt henni hafði hann þá á boðstólum m. a. ljóð- mæli Kristjáns Jónssonar, fyrir 1 ríkisdal og 72 skildinga, en í gylltu bandi kostaði bókin 2 ríkis- dali. Enn fremur hina vinsælu sögu Kristófers Jónssonar, „Pétur og Bergljót", sem Jón Ólafsson þýddi. Sú kostaði 2 skildinga, og „Þúsund og ein nótt“ í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar var þar auglýst, enn fremur nokkrar bækur, sem Páll Sveinsson hafði gefið út, en hann gaf út talsvert af íslenzkum bókum í Kaupmannahöfn á þessum árum. Nokkru eftir að Sigfús Eymundsson settist að í Reykjavík keypti hann húsið nyrzt við Lækjar- torg. Þetta hús var lengi kennt við Eymundsson og stendur enn. Húsið cr meira en 100 ára, byggt 1852 af dönskum kaupmanni, C. P. Knudtzon. Síð- ar bjó þar Ólafur Pálsson, dómkirkjuprestur, en þarna kom Sigfús fyrir ljósmyndastofu og bóka- verzlun, stækkaði húsið, hækkaði og lengdi. Bókaútgáfu hóf hann árið 1880 og lagði áherzlu á útgáfu vandaðra bóka, sem höfðu ótvírætt, menn- ingargildi. Líka gaf hann út ýmsar fræðibækur, sem fluttu almenningi nytsaman fróðleik. Einnig lagði hann mikla áherzlu á að greiða fyrir sölu erlendra bóka og tímarita og loks rak hann prentsmiðju um skeið. Naut bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar fljótlega mikils trausts og virðingar í bænum. Undir lok fyrsta tugs þessarar aldar skipti verzl- unin og forlagið um eigendur. Pétur heitinn Hall- dórsson ákvað að hverfa heim frá lögfræðinámi i Kaupmannahöfn og kaupa fvrirtæki — og tók hann við því 1. janúar 1909. Pétur rak verzlunina og ekki síður útgáfuna af miklum myndarskap. Hann horfði ekki í kostnað, þegar um var að ræða að koma út bókum, scm hann taldi þarfar þjóðmenn- ingunni í landinu. Hann gaf t. d. út hin stórmerku vísindarit Bjarna Sæmundssonar, þýzk-íslenzka orðabók Jóns Ófeigssonar og hið vinsæla Lesarka- safn. Og kennslubækur, allt frá stafrófskvcrum til efnismikilla rita fyrir háskólastúdenta. Er Pétur tók við borgarstjórastörfum árið 1935 Sigiús Eymundsson tók Björn sonur hans við fyrirtækinu og rak það um árabil. Erfingjar Péturs breyttu fvrirtækinu í hlutafélag árið 1951, en um áramótin 1958—’59 keypli Almenna bókafélagið þetta rótgróna fyrir- tæki og hefur rekið j)að síðan. Það var ekki fyrr en 1920 að vcrzlunin flutti úr hornhúsinu við Lækjartorg. Þá keypti Pét.ur Hall- dórsson gamalt steinhús að Austurstræti 18, er Sverrir Runólfsson, steinsmiður, hafði byggt. Pétur breytti húsinu og gerði þar nýtízkulega bókabúð á þeirra tíma mælikvarða. Þegar Almenna bókafélagið keyjrti fyrirtækið, festu Stuðlar hf„ styrktarfélag Almenna bókafé- lagsins, kaup á hluta lóðarinnar Austurstræti 18 og reistu jrar myndarlegt stórhýsi ásamt erfingjum Péturs Halldórssonar. Meðan á framkvæmdum stóð, var bókaverzlunin til húsa í Aðalstræti (i, en í nóv- ember 1960 flutti hún aftur á gamla staðinn — og j)á í glæsileg og nýtízkuleg húsakynni, sem allir Reykvíkingar þekkja nú orðið. Eignarhluti Stuðla hf„ í nýbyggingunni er götuhæðin, sem bókaverzl- unin er á, svo og bókageymslur. Hefur verzlunin ])ví fengið aðstöðu til þess að gegna hlutverki sínu sem bezt verður á kosið, þar er nú á boðstólum meira úrval innlendra og erlendra bóka, tímarita og ritfanga en nokkru sinni fyrr. Framkvæmdastjóri er nú Baldvin Tryggvason, en verzlunarstjóri Björn Pétursson. 28 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.