Frjáls verslun - 01.06.1968, Page 13
FRJÁLS' VERZLUN
13
STARFSKYNNING
STARF FLUGFREYJUNNAR
FlugfreYÍufélag íslands hefur hafið samstarf við
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og kynnir F.V. í því sambandi
starf flugfreyjunnar.
Flugfreyjustarfið hefur jafnan
haft mikið aðdráttarafl fyrir ung-
ar stúlkur og okkur er ekki grun-
laust um, að í sumum tilfellum
ráði rómantíkin einhverju um.
Stúlkurnar sjá sjálfar sig í glæsi-
legum, aðskornum einkennisbún-
ingum, gjarnan við hlið ungs og
myndarlegs flugmanns, og þær
skoða fjarlæg lönd og njóta lífs-
ins.
Því miður er þetta ekki annað
en draumsýn. Víst er starf flug-
freyjunnar fjölbreytt og skemmti-
legt, en það er líka erfitt og eftir
langar flugferðir eiga þær enga
ósk heitari en að komast sem
lengst burt frá öllum flugmönn-
um og kasta sér í bólið dauðupp-
gefnar á sál og líkama.
Anna Harðardóttir hefur unnið
hjá Loftleiðum hf. í fjögur ár og
starfað bæði sem skrifstofustúlka
og flugfreyja, og við ræddum við
hana stundarkorn um flugfreyju-
starfið.
— Hvers vegna gerðist þú flug-
freyja?
— Áður en ég byrjaði á því
starfi, vann ég í banka, þar sem.
vinnutíminn var fastákveðinn og
starfið heldur tilbreytingarlítið.
Mig langaði til að reyna eitthvað
nýtt og skemmtilegt og sótti því
um flugfreyjustarf hjá Loftleið-
um.
— Hvaða skilyrði eru sett fyrir
starfsveitingu?
— Umsækjendurnir þurfa að
hafa náð tvítugsaldri og hafa að
minnsta kosti lokið gagnfræða-
prófi. Við þurfum að tala eitt
norðurlandamál og ensku, en það
er æskilegt að frönsku- eða þýzku-
kunnátta sé einnig fyrir hendi.
— Hvernig er svo þjálfun hátt-
að?
— Ja, þegar við höfum sent
inn umsóknir, erum við kallaðar
til viðtals. Ef maður sleppur heill
á húfi út úr því, er læknisskoðun
næst á listanum og svo þriggja
vikna námskeið, þar sem kennt
er, hvernig skuli bregðast við
ýmsum vandamálum um borð. Við
erum t. d. þjálfaðar í sambandi
við nauðlendingar og læknir kenn-
ir nokkur nauðsynlegustu undir-
stöðuatriði sjúkrahjálpar. Þegar
þessu námskeiði er lokið, göng-
umst við undir próf og eftir eina
reynsluferð er eldrauninni lokið.
— f hverju er svo ykkar dag-
lega starf fólgið eftir það?
— Eins og ég sagði áðan, er
starfið tilbrevtingaríkt, en það er
líka erfitt. Flugferðir eru reglu-
legar og ákveðið með nokkrum
fyrirvara, hvernig áhöfnin verður
skipuð. Við höfum strangar reglur
um hvíldartíma og fáum því oft
- Anna Harðardóttir: Flugfreyja á að líta á sig sem þjónustustúlku en
en ekki gestgjafa.