Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1968, Síða 16

Frjáls verslun - 01.06.1968, Síða 16
16 FRJÁLS VERZLUN Ritstjóri Frjálsrar verzlunar hefur farið þess á leit við mig, að ég skrifaði pistla um auglýsingar og auglýsingastarfsemi, og er mér það af ýmsum ástæðum ánægju- efni. Mér finnst nauðsynlegt að byrja á því að skýra í stuttu máli frá afskiptum mínum af auglýs- ingastarfsemi til að sýna fram á, að ég' er hvorki sérfræðingur á þessu sviði né algjör viðvaningur. Aðalstarf mitt hefur undanfarin ár verið blaðamennska, en um þær mundir, sem auglýsingastofa Gísla B. Björnssonar, teiknara, var komin vel á laggirnar, hófust fyrstu kynni mín af þessu fagi. Gísli B. Björnsson fór þess eitt sinn á leit við mig, að ég gerði textatillögur og áætlun um, hvern- ig verja skyldi ákveðnu fé í til- tekinn tíma, til að viðskiptavinur- inn fengi sem mesta nýtingu á því fé, sem hann vildi verja í auglýs- ingaherferðina. Þetta var skemmti- legt verkefni, og ég varð eiginlega býsna undrandi, þegar viðskipta- vinurinn lagði blessun sína yfir skástu textatillögurnar og áætlun- ina í heild. Með þessu verkefni vaknaði áhugi minn á auglýsing- um og auglýsingaaðferðum og kannski einkum áhugi á betri skilningi milli þeirra, sem vinna auglýsingar og þeirra, sem kaupa þá vinnu. Hér skal strax tekið fram, að með orðinu auglýsingar á ég jafnt við blaðaauglýsingar, umbúðir, vörumerki, auglýsinga- SIGURJÓN JÓHANNSSON: AUGLÝSINGA- STARFSEMI skilti og hvaðeina það, sem unnið er á auglýsingastofum. Ég vann að textatillögum, hugmyndavinnu og auglýsingaáætlunum í auka- vinnu um alllangt skeið, en vann síðan eingöngu við auglýsingar hjá auglýsingastofu Gísla B. Björnssonar í rúmt ár, eða fram í febrúar sl. Mér finnst nauðsyn- legt að taka þetta fram til að sýna fram á, að ég hef talsverða þekkingu á þessari starísgrein og hef séð ýmsar hugmyndir verða að býsna lærdómsríkum veru- leika. Látum þetta nægja sem kynn- ingu á eigin verðleikum á þessu sviði. En ég minntist áðan á betri skilning milli auglýsenda og þeirra, sem gera auglýsingar. Því miður hef ég enn ekki kom- ið í verk að kynna mér helztu atriði í þróun íslenzkrar auglýs- ingagerðar, en óhætt er að segja, að þeir, sem fyrstir settu á stofn vísi að auglýsingastofum í líkingu við sambærileg erlend fyrirtæki, hafi verið Atli Már og Ásgeir Júl. og reyndar Halldór Pétursson, sem er nú þekktari ,,illustrator“ og listmálari en auglýsingateikn- ari. Mér hefur verið tjáð, að Ás- geir Júl. hafi verið býsna sleipur textasmiður, en margir virðast álíta, að góður texti eða „slogan“ komi af sjálfu sér og sé ekki borg- unar verður, en það er áreiðan- lega mikill misskilningur, sem við getum rætt um síðar. Atli Már er enn í fullu fjöri og vonast ég til að geta kynnt hann og verk hans síðar. Hin „nýja“ kynslóð íslenzkra auglýsingateiknara hefur látið mikið til sín taka á undanförnum árum, og nú eru starfandi fyrir utan þá, sem ég minntist á áðan, nokkuð samlitur og samstilltur hópur yngri manna, sem hafa komið á stofn „Félagi íslenzkra teiknara“, og vinnur að sameigin- legum áhuga- og framfaramálum þessarar nýju stéttar. Þetta fólk hefur tekið mið af erlendum stétt- arbræðrum sínum og hefur reynt að fá atvinnuheitið auglýsinga- teiknari viðurkennt og virt. Jafn- framt hefur það reynt að útfæra þjónustuna við viðskiptavininn þannig, að hann þurfi ekkert um málið að hugsa, eftir að auglýs- ingarnar og kostnaðaráætlun hef- ur verið samþykkt. Til að skilja betur ákjósanlegt verksvið aug- lýsingastofu, skal ég segja frá því í stórum dráttum, hvernig aug- lýsingastofa erlendis er rekin: Erlend auglýsingastofa leitast við að þjóna fyrirtæki í einu og öllu, er lýtur að auglýsingaþörf þess. Fyrirtækin gerast yfirleitt samningsbundnir viðskiptavinir til eins árs í senn og geta síðan sagt samningum lausum með fyr- irvara og snúið sér til annars aug- lýsingafyrirtækis, ef óánægja rík- ir með úrlausn verkefna. Auglýs- ingastofan tilkynnir opinberlega.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.