Frjáls verslun - 01.06.1968, Qupperneq 26
26
FRJALS VERZLUN
FRAMKVÆMDIR
UNNT ER AÐ BYGGJA YERKSMIÐJU,
SEM GETUR AFKASTAÐ
187.000 TONNUM
Skipulagi Straumsvíkursvœðisins heíur verið hagað þannig,
að unnt er að stœkka verksmiðjuna frá 60000 tonnum upp í 187000 tonn.
Framkvæmdir við álverksmiðj-
una í Straumsviik hafa nú staðið
síðan í apríl 1967 og hafði
FRJÁLS VERZLUN tal af Philipp
Múller, einum af framkvæmda-
stjórum ÍSALS, en Muller hefur
bæði starfað á aðalskrifstofum
ALUSUISSE og við ýmsar af
verksmiðjum fyrirtækisins. Mull-
er er framkvæmdastjóri stjórnar-
deildar (administration) ÍSALS,
en deild sú annast daglegan rekst-
ur framkvæmda nú ogframleiðslu,
þegar hún hefst.
F.V.: Hve Iangt eru fram-
kvœmdir nú komnar?
P.M.: Segja má, að framkvæmd-
ir við byggingu álverksmiðjunn-
ar sjálfrar séu um það bil hálfn-
aðar. Lokið hefur verið við húsa-
byggingar og skyldarframkvæmd-
ir að 70—80% og lokið er um það
bil fimmta hluta þeirra fram-
kvæmda, sem lúta að niðursetn-
ingu véla. í þessar framkvæmdir
hefur verið varið nálægt 13 millj-
ónum dollara. Samningar hafa ver-
ið gerðir um framkvæmdir, sem
nema um 29 milljónum dollara,
en alls er áætlað, að kostnaður
muni nema um 35 milljónum.
F.V.: Hafa framkvœmdir stað-
izt ácetlun?
P.M.: Við verksmiðjuna sjálfa
má segja, að framkvæmdir hafi
fyllilega staðizt. Að vísu er á fá-
einum sviðum um að ræða smá-
vægileg frávik, en þau munu ekki