Frjáls verslun - 01.06.1968, Qupperneq 29
FRJAL5 VERZLUN
29
á ári og verSi afköstin síSan auk-
in í tveimur áföngum í 60.000
tonn. Hvernig verður framkvœmd-
um við þessa tvo síðari áfanga
háttað?
P.M.: Samkvæmt samningnum
er ráð fyrir því gert, að miðáfanga
verði lokið eigi síðar en í septem-
ber 1972 og síðasta áfanga í júní
1975. Ég býst þó fastlega við, að
farið verði að vinna með fullum
afköstum þó nokkru fyrir þann
tíma og einnig geri ég ráð fyrir,
að í stað þess, að verksmiðjan
verði stækkuð í tveimur áföngum,
verði það gert í einum. Hafa verð-
ur markaðshorfur einnig í huga
og má geta þess, að þýzki mark-
aðurinn, sem gert var ráð fyrir
að selja framleiðslu þessarar
verksmiðju á, verður væntanlega
fullur, þegar hún hefur starfsemi
sína, og er ekki annað séð, en að
selja verði framleiðsluna til
Bandaríkjanna.
F.V.: HvaS munduS þér vilja
segja um möguleika á byggingu
annarrar álverksmiðju á íslandi
og þátttöku ALUSUISSE í slíkri
byggingu?
P. M.: Ég álít, að sem stendur,
sé ekki unnt að segja, að ALU-
SUISSE hafi mikinn áhuga á því,
því kostnaður við byggingu heill-
ar verksmiðju með öllu, sem til
heyrir, er mjög mikill. Á það má
og benda, að þótt ekki sé gert ráð
fyrir, að verksmiðjan afkasti
meiru en 60.000 tonnum árlega,
hefur byggingum verið þannig
fyrir komið, að á Straumsvíkur-
svæðinu er unnt að byggja verk-
smiðju, sem afkastað getur 187,-
000 tonnum á ári, en til að ná
þeim afköstum, verða bræðsluhús
(pot rooms) að verða fjögur og
auka verður verulega við önnur
mannvirki á staðnum. Það er því
augljóst, að ef auka ætti álfram-
leiðslu á íslandi, bæri fyrst og
fremst að auka afköst þeirrar
verksmiðju, sem nú er í byggingu.
F.V.: HvaS vilduð þér að lok-
um segja um möguleika á full-
vinnslu áls hér á landi og útílutn-
ing slíks varnings?
P. M.: Um það skal ég ekki
segja að svo stöddu, en um þessar
mundir fer fram athugun á veg-
um ALUSUISSE að beiðni ís-
lenzkra stjórnvalda á slíkum
möguleikum. Hinn hái flutnings-
kostnaður, sem leiðir af legu
landsins og þeir háu tollar, sem
Islendingar verða að greiða, með-
an þeir standa utan tollabanda-
laganna, hljóta að gera það að
verkum, að verulegir örðugleikar
eru á sölu fullunninna álvara, en
hlutverk þeirra, sem athuga þessa
möguleika, er meðal annars að
kanna, hvort unnt sé, að koma
einhverjum íslenzkum álvörum á
erlendan markað.