Frjáls verslun - 01.06.1968, Side 40
4D
við líka með bólsturiðju og fram-
leiðum t. d. sjálfir sófasett. Þá fá-
um við annaðhvort leyfi til að
framleiða einhverja erlenda
„týpu“ eða þá við teiknum það
sjálfir. Við höfum líka að sjáif-
sögðu samband við framleiðend-
ur erlendis og flytjum inn frá t. d.
Svíþjóð, Danmörku, Noregi og
Þýzkalandi. Við reynum þó eftir
megni að stilla innflutningi í hóf.
— Nú kvarta margir undan því,
að húsgögn séu óhóflega dýr.
— Góð húsgögn eru vissulega
nokkuð dýr. Þá held ég að inn-
lend húsgögn hafi, hvað verð snert-
ir, staðið nokkuð í stað síðastliöin
þrjú ár. Það er líka alvegnauðsyn-
legt fyrir framleiðendur hérlendis,
því að annars fengi innflutningur-
inn of mikil ítök.
— Hvernig finnst þér kaup-
mátturinn vera í dag?
— Við höfum nú verið með
þessa verzlun í þrjú og hálft ár
og höfum ekki yfir neinu að
kvarta, verzlunin hefur aukizt
nokkuð jafnt og þétt hjá okkur.
Við höfum þó að sjálfsögðu orðið
varir við að kaupmátturinn er
nokkuð minni, þótt það sé fjarri
því, að um nokkuð hrun sé að
ræða. Ég er ekki frá því, að það
sé til góðs að nokkru leyti. Fólk er
miklu vandlátara, þegar það þarf
að kaupa hluti og hugsar sig betur
um. Unga fólkið fylgist líka vel
með, kaupir og les blöð um hús-
gögn og innréttingar og kemur
til okkar með alveg ákveðnar hug-
myndir. Sumir biðja okkur um að
panta fyrir sig sérstaklega, og við
gerum það auðvitað, ef við getum.
Við seljum svo með afborgunar-
skilmálum eins og allir aðrir.
— Og hvernig gengur að inn-
heimta það?
— Það gengur mjög vel. Það
verða auðvitað einhver vanskil
öðru hvoru, en það kemur ekki
oft fyrir. Unga fólkið er sérstak-
lega passasamt með að greiða
reglulega. Það kemur auðvitað
fyrir, að það er illa statt í einn eða
tvo daga, eftir að víxillinn fellur,
en við erum ekkert að fetta fingur
út í það, enda gerir það öll sín við-
skipti upp við okkur, en borgar
ekki víxlana í banka. Þannig höf-
um við líka samband við okkar
viðskiptavini í allt að því ár, eftir
að þeir festa kaup á húsgögnum
og vitum því, ef þeir eru óánægðir
með eitthvað og eitthvað þarf að
bæta úr fyrir þá.
— Hvenær er mest að gera hjá
húsgagnaverzlunum ?
— Hjá okkur er mesti annatím-
inn frá septemberbyrjun og fram
að áramótum. Janúar og febrúar
eru nokkuð rólegir, en svo er mik-
ið að gera á vorin.
— Eruð þið ánægðir með stað-
setningu verzlunarinnar?
FRJALS VERZLUN
Aðalsteinn Hallsson.
— Já, mjög ánægðir, hún gæti
vart verið betri. Við erum svotil
mitt í nýju hverfunum, þar sem
verið er að byggja dag og nótt, og
í ný hús þarf auðvitað ný hús-
gögn. Svo er eitt vandamál, sem
við erum alveg lausir við, og það
er skortur á bílastæðum. Verzlanir
við Laugaveg eiga í óskaplegum
erfiðleikum vegna þessa, en við
erum svo heppnir að hafa mikil og
góð bílastæði fyrir framan dyrnar
hjá okkur.
— Eru einhverjar nýjungar á
döfinni?
— Já, við erum t. d. að byrja
með mjög falleg sófasett úr ekta
leðri. Það er fínasta uxahúð, og
það hefur verið mikill skortur á
slíku hérlendis. Svo erum við
einnig með tvær nýjar gerðir af
sófasettum, en það er erfitt að
lýsa þeim, sjón er sögu rikari.
— Ef við snúum okkur aðeins
að fjármálahliðinni, hvernig hefur
ykkur gengið að fá fyrirgreiðslu í
bönkum?
— Við höfum ekki undan neinu
að kvarta í því efni. Við höfurn
lengstum átt viðskipti við Búnað-
arbankann og Iðnaðarbankann, og
ég held, að þau viðskipti hafi ver-
ið báðum hagstæð. Verzlunin stóð
nokkuð höllum fæti, þegar við
tókum við henni, og það hefði ver-
ið ógerlegt að rétta hana við, ef
við hefðum ekki haft lánstraust
fyrir. Við höfum því ástæðu til að
vera ánægðir, bæði með okkur og
aðra.
Híbýlaprýði, Hallarmúla, er snyrtileg verzlun með mikið úrval ný-
tizku húsgagna.