Frjáls verslun - 01.06.1968, Blaðsíða 42
42
FRJÁLS VERZLUN
það er gott að breyta leshraða eft-
ir því, sem efnið gefur tilefni til.
MIKILVÆG LÍKAMLEG
ATRIÐI.
Líkamlegar hreyfingar geta haft
mikil áhrif á það, hversu miklum
árangri þú nærð með málflutn-
ingi þínum. Samkvæmt rannsókn-
um sérfræðinga er mat sjónvarps-
áhorfandans á hæfileikum þínum
grundvallað að 9/10 hlutum á því,
sem hann sér til þín, en aðeins
að 1/10 hluta á því, sem þú segir.
Útvarpshlustandinn byggir mat
sitt hins vegar nær eingöngu á
því, sem hann heyrir til þín.
Einmitt á þessu sviði er hvað
nauðsynlegast að gera sér góða
grein fyrir eðli viðkomandi fjöl-
miðlunartækis. Þó að útvarps-
hlustandinn sjái ekki til þín, veit
hann þó um öll þín svipbrigði, því
þau ber hljóðneminn honum í
rödd þinni. Allar hreyfingar
skaltu forðast sem mest, því þær
valda sveiflum á raddstyrk þínum,
þar sem hijóðneminn fylgir þér
ekki eftir. Umfram allt skalt þú
gæta þess að sitja sem beinast við
hljóðnemanum, ekki stífur eða
sperrtur, heldur rólegur og af-
slappaður.
Þegar þú kemur fram í sjón-
varpi, er ýmislegt, sem þú verður
að hafa í huga í sambandi við
þessi mál:
AUGUN.
Þú horfir í augu annarra til
að lesa hugsanir þeirra, og með
eigin augum miðlar þú áhuga
þínum. Rétt notkun augnanna er
nauðsynleg til að ná góðum ár-
angri í sjónvarpi.
1) Sjónstefna. Horfðu alltaf á
þann, sem þú ert að tala við. Ef
það er sjónvarpsáhorfandinn,
horfðu þá beint í sjóngler mynda-
vélarinnar. Horfðu ekki á mynda-
vélina, ef orð þín eru ætluð ein-
hverjum í upptökusalnum. Á hinn
bóginn skaltu forðast að tala við
einhvern í upptökusalnum, ef orð
þín eru í rauninni ætluð áhorfand-
anum.
Það er mjög óheppilcgt að tala
yfir fólki í stað þess að tala við
það. Áhorfanda gremst þeim, er
það gerir, eða verður áhugalaus.
2) Að líta niður. Ef þú lítur
niður eitt andartak, gerir áhorf-
andinn ráð fyrir, að þú hafir ver-
ið að líta á minnisblað. Til þess