Frjáls verslun - 01.04.1973, Side 11
1957. Frá árinu 1958 og síðar
hefir hins vegar oftast verið of-
framboð á flestum olíutegund-
um með lægra verðlagi (buyer’s
market) og hefir verið unnt að
fá hagstæð kaup hjá vestrænum
olíufélögum og með verulegum
afsláttum.
Segja má, að allan tímann síð-
an 1958 hafi verð frá Rússum
verið í hákanti miðað við kaup
frá vestrænum olíufélögum.
Stafar þetta af tvennu: Annars
vegar þörf íslendinga til að selja
fisk til Sovétríkjanna og hins
vegar óhagstæðari stöðu í samn-
ingum, þegar vitað er fyrirfram
að ekki verður staðið upp án
þess að gengið sé til samninga.
1966
1967
1968
1969
1970
1971
OLÍUFLUTNINGUR FRÁ
SOVÉTRÍKJUNUM
Rétt er hér til fróðleiks í sam-
bandi við þetta mál að láta þess
getið, að svo virðist sem um
verulega stöðnun sé að ræða í
olíuútflutningi Sovétríkjanna.
Stafar þetta m. a. af því, að til
skamms tíma hafa Sovétríkin
talist mjög vanþróað land í
notkun olíu, en olíunotkun í So-
vétríkjunum nam árið 1971 að-
eins um það bil helmingi þess,
sem notað er á íslandi miðað við
íbúafjölda.
Ef borinn er saman útflutn-
ingur Sovétríkjanna á s.l. 5 ára
tímabili og haft til miðviðunar
heildarútflutningur allra landa
á olíum á sama tíma, kemur
Heildar- Útflutningur
útflutningur Rússa
825 52
893 54
1018 56
1159 58
1270 59
1355 56
eftirfarandi í Ijós. (Tölurnar
eru í milljónum tonna).
Tölur þessar bera greinilega
með sér að hluti Rússa í heims-
verzlun með olíur fer ört minnk-
andi, sem sýnir að meginhluti
framleiðsluaukningar þeirra er
notaður á heimamarkaði. Jafn-
framt sýna tölur þessar, að fram-
boð Rússa til útflutnings er
mjög takmarkað, sem væntan-
lega hefir þær afleiðingar að
þeir muni leitazt við að selja
eingöngu á þeim mörkuðum þar
sem þeir fá bezt verð, svo sem
t. d. hefir verið hér á íslandi.
Að öðru jöfnu væri þess að
vænta að betri kaup væri hægt
að gera í þeim löndum þar sem
um offramboð eða offramleiðslu
er að ræða.“
Hlutfall
Rússa
%
6.3
6.0
5.5
5.0
4.6
4.1
EMA - kaupmenn stofna
EÍAUPGARÐ HF.
Ætla að setja á stofn stórmarkað.
Fyrir nokkru var stojnað
hlutafélagið Kaupgarður h.f.
í Reykjavík, en það eru aðil-
ar að InnkaupasambancLi
matvörukaupmanna, IMA,
sem að því standa. Markmið
með félaginu er að setja á
stofn og reka stórmarkað í
Reykjavík og hefur verið
sótt um lóð fyrir hann til
borgaryfirvalda.
Að sögn Einars Berg-
manns, formanns stjórnar
IMA, verður stefnt að því
með stofnun stórmarkaðar,
að hafa hann sem eins konar
„móðurskip" fyrir einstakar
verzlanir kaupmanna í sam-
tökunum, þar sem þeir geti
sjálfir fengið vörur og eins
bent viðskiptavinum sínum
á vörur með hagstæðu verði
þar.
35 aðilar IMA.
IMA-samtökin voru stofn-
uð fyrir fjórum árum og eru
35 kaupmenn aðilar að þeim.
Markmið þeirra er í stórum
dráttum, að stuðla að sam-
vinnu kaupmannanna og þá
um leið betri þjónustu við
viðskiptavinina. — Yfirleitt
eru félagsmennirnir eigend-
ur smærri hverfisverzlana,
sem vilja veita fullkomna
þjónustu í þeim. — Að sögn
Einars Bergmanns vilja
IMA-félagsmenn nú hins
vegar, leita nýs forms á sam-
vinnu sinni og stefna að
því að hverfisverzlanirnar
verði áfram eins konar út-
verðir, en heildarmiðstöð
aftur á móti í stórmarkaði.
IMA-samtökin eru opin
öllum smásölukaupmönnum,
sem aðilar eru að Kaup-
mannasamtökum íslands, en
varðandi Kaupgarð h.f. er
vonast til að auk kaupmanna
verði heildsalar og verk-
smiðjueigendur hluthafar í
því félagi. Sem kunnugt er.
hafa IMA-kaupmenn gert
sameiginlega, hagstæð inn-
kaup hjá heildsölum og
framleiðendum, sem fram
hefur komið í útsöluverði til
viðskiptabanka samtakanna
og er þetta mikilsvert til að
koma í kring stórum stað-
greiðsluinnkaupum. — Hinn
hluti arðs fer til verzlunar-
manna sjálfra til að auðvelda
þeim innkaup og fyrir-
greiðslu við viðskiptavinina.
I fyrra nam veltan hjá
IMA 95 milljónum króna.
FV 4 1973
11