Frjáls verslun - 01.04.1973, Blaðsíða 63
Nýjar hugmyndir hafa líka
komið fram eftir að Vestmanna-
eyjagosið hófst og hafa fyrir-
tæki spurzt fyrir um vikurinn,
sem þau vilja kaupa og flytja
inn. Hafa menn þá í huga, að
verði framleiðsla hafin á ferro-
silicon 75 heima á Islandi, megi
flytja vikur út með skipum, sem
sigla með hráefnið til íslands.
Ekki alls fyrir löngu barst
okkur fyrirspurn um 100-200
þús. tonn af sementi. Við hefð-
um hins vegar aðeins getað selt
10 þús. tonn af islenzku sem-
enti.
Menn hafa líka hringt hingað
og skrifað út af Sigöldu-fram-
áhuga á þeim. Það er spurt um
kvæmdunum og látið í ljós
skatta-, og tollamál á íslandi og
au.i«iuu Li.ii iæivifæri til að fjár-
festa í fyrirtækjum, með það
fyrst og fremst í huga, að rekst-
urinn geti orðið orðbær en ekki
nauðsynlega að eiga meirihluta
í fyrirtækinu.
— Hvernig standa svo ís-
lenzkir kaupsýslumenn sig í
að efla viðskiptatengslin við
starfsbræður sína hérlendis?
— Mikið vantar á að forstöðu-
menn íslenzkra fyrirtækja leggi
sig nógu fram um að hafa þau
mál í góðu lagi. Sumir sýna þó
viðleitni, t. d. með kynningar-
bréfum, sem dreift er. Oft eru
þessi bréf þó að hluta til á ís-
lenzku, þannig að enginn botn
fæst í þau fyrir hina erlendu les-
endur. Og sífellt berast kvartan-
ir um að bréfum sé ekki svarað
heima.
Það er vissulega iþörf á því að
íslenzkir útflytjendur geri sér
far um að kynnast innflutnings-
reglum hér í landi og þeim reglu-
gerðum, sem um innfluttar vör-
ur gilda, því að kröfurnar eru
miklar.
— Ekki er hægt að Ijúka
þessu samtali án þess að minn-
ast lítillega á þátttöku sendi-
herranna í samkvæmislífi, sem
mjög hefur borið á góma í um-
ræðum uin daginn og veginn
heima á íslandi undanfarið.
Hvað sækið þér mörg kokkteil-
boð á viku?
— Hér í Washington eru
sendiráð 123 ríkja, en við höfum
stjórnmálasamband við 45
þeirra. Það er lítill tími til að
stunda síðdegisboð, en við reyn-
um að halda uppi nánu sam-
bandi við sendiráð stórveldanna
og Norðurlandaþjóðanna.
Engin ástæða er til að draga
dul á mikilvægi þessara boða,
því að ég hygg, að í Stokkhólmi
hafi ég afgreitt helming verk-
efna minna með samtölum við
sænska embættismenn í síðdeg-
isboðum. Það er oft mjög erfitt
að ná til þessara manna á skrif-
stofum en samkvæmt kurteisis-
venjum eru þeir fulltrúar ríkis-
stjórnar sinnar í móttökum
hinna erendu sendiráða, og þar
er hægt að ræða við þá marg-
vísleg mál, sagði Haraldur
Kröyer að lokum.
CD PIONEER
Hin lulfkomna hEjómtækni
PIONEER hljómtækin hafa farið sigurför um allan
hinn vestræna heim.
Sér-blöð á sviði hljómtækni keppast við að gefa
tæknimönnum Pioneer sín beztu meðmæli. Hljóm-
burður Pioneer hljómtækja er afburða góður — en
])að er einmitt aðalatriðið þegar keypt eru hljóm-
tæki.
VIÐ gefum 1—3 ára ábyrgð — og það eitt sannar
ágæti þessara tækja.
VIÐ bjóðum upp á mjög hagstæða greiðsluskilmála.
VIÐ eigum til á lager flestar gerðir af
Pioneer hljómtækjum.
VIÐ bjóðum upp á sérstaklega góða hlustunarað-
stöðu í stúdíói okkar á annarri hæð á Lauga-
vegi 66.
© KARNABÆR
FV 4 1973
63