Frjáls verslun - 01.04.1973, Síða 35
starfsemi vestan hafs eins og t.
d. írar, Hollendingar og Austur-
ríkismenn, svo dæmi séu nefnd.
Ingunn sagði greinilegt, að
Norðurlöndin hefðu almennt
gott orð á sér í Bandaríkjunum,
og ætti það sérstaklega við um
ísland. Af þeim athugunum,
sem Ingunn gerir á umsögnum
fjölmiðla um land og þjóð, sem
mikið hefur verið um upp á síð-
kastið, má ráða að um 97 % er
mjög jákvætt og eitt það versta,
sem hún hefur enn rekizt á í
frásögnum Bandaríkjamanna af
íslandi, eru miður fögur um-
mæli rithöfundar um íslenzka
skyrið, sem hann ræður öllum
útendingum frá að bragða á.
Einnig hefði frægur sjónvarps-
maður sagt í fyrrasumar, þegar
skákeinvígið var að hefjast, að
„vikudvöl á íslandi væri nægi-
leg refsing fyrir Bobby Fisch-
er.“ Enginn frekari rökstuðning-
ur fylgdi. Ingunn sagði, að um-
mælunum hefði verið mótmælt
við viðkomandi sjónvarpsstöð,
en þaðan hefði ekkert svar bor-
izt.
MARGÞÆTT STARF.
Starf Ingunnar er fóigið í að
svara bréfum, senda út upplýs-
ingarit og koma fram á fundum
og samkomum og flytja þar fyr-
irlestra um íslenzk málefni. Að
meðaltali sagðist Ingunn svara
15 fyrirspurnum bréflega dag
hvern á mesta annatíma, sem er
tímabilið janúar til maí. Auk
þess sér sameiginlega skrifstof-
an um bréfaskriftir vegna upp-
lýsinga um Norðurlöndin al-
mennt. Fyrirspurnirnar, sem nú
berast, snúast aðallega um
ferðalög árið 1974, og er greini-
legt, að margir fara til íslands
ár eftir ár. Það á einkanlega við
um þátttakendur í hálendisferð-
um.
Fimm eða sex sinnum á ári
sendir íslenzka skrifstofan út
upplýsingar til blaða og ferða-
skrifstofa víðs vegar um Banda-
ríkin, samtals um 4000 aðila. Þá
senda Norðurlandskrifstofurnar
sameiginlega frá sér fréttabréf
mánaðarlega.
Greinilegt er, að Bandaríkja-
menn, sem hafa heimsótt ísland,
hafa tekið ástfóstri við landið.
Þetta kemur meðal annars fram
í fjölda tilboða, sem borizt hafa
að undanförnu til íslenzku skrif-
stofunnar um framlög í Vest-
mannaeyjasöfnunina. Ingunn
sagði, að þessi persónubundnu
kynni væru áhrifaríkust í ís-
landskynningu þó að almenn
upplýsingaþjónusta væri líka
nauðsynleg. í því sambandi má
geta þess, að mjög þekkt kynn-
ingarfyrirtæki vestan hafs,
Thomas J. Deegan Inc. hefur
gert íslenzkum yfirvöldum til-
boð um að taka að sér íslands-
kynningu á breiðum grundvelli
í Bandaríkjunum fyrir 18.000
Bandaríkjadali á ári. Slík kynn-
ing myndi ná til málefna eins og
landhelgismálsins.
NÝTT HÚSNÆÐI.
Um þessar mundir eru uppi
áform um að flytja Norðurlanda-
skrifstofurnar í nýtt húsnæði,
sem er í byggingu við Park
Avenue í New York. Er að því
unnið að ná samstöðu sem
flestra Norðurlandafyrirtækja
og opinberra skrifstofa um að
flytjast þangað. Hefur það mál
verið kannað við íslenzku ræðis-
mannsskrifstofuna og fyrirtæk-
ið Icelandic Imports.
Þá vinna Norðurlöndin um
þessar mundir að gerð nýrrar
kynningarkvikmyndar, sem á að
verða 28 mínútna löng og fjalla
um vetrarferðir til Norðurland-
anna. Öll eiga þau við sama
vandamálið að stríða, sem sé, að
gistirými er ekki fyrir hendi til
að taka á móti fleiri erlendum
gestum að sumarlagi.
Ingunn sagði, að starfið í New
York væri mjög áhugavert þó
að fyrirspurnirnar sem bærust
væru mismikilvægar. Nefndi
Ingunn sem dæmi, að kona
nokkur, er til íslands ætlaði,
hefði hringt sérstaklega til
skrifstofunnar til að spyrjast
fyrir um það, hvar hún gæti
þvegið hár sitt á íslandi. Og öll-
um slíkum spurningum og öðr-
um alvarlegri er svarað eftir
beztu getu og skynsemi á ís-
lenzku ferðaskrifstofunni í New
York.
PEUCEOT
bíllinn
sem þér getió
treyst
HAFRAFELL
GRETTISGÖTU 21 SÍMI 2 3511
FV 4 1973
35