Frjáls verslun - 01.04.1973, Blaðsíða 61
Sendiráð íslands í Washington
”Bandaríkjastjórn hefur fullan
skilning á vanda okkar í
landhelgismálinu
— en útfærslan stangast á við meginstefnu þeirra44, segir
Haraldur Kröyer, sendiherra Islands í Washington.
í yfirlætislausri bygginguvið
Connelticut Avenue í Washing-
ton hefur íslenzka sendiráðið í
Bandaríkjunum skrifstofur sín-
ar. Þar starfa fjórir íslending-
ar, Haraldur Kröyer, ambassa-
Haraldur Kröyer, nýskipaður
dor, Hörður Helgason, sendi-
fulltrúi og tveir ritarar, þær
Svava Vernharðsdóttir og
Hanna M. Karlsdóttir.
Eftir þeim vitnisburði, sem
bandarískir embættismenn gáfu
sendiherra íslands í Washington.
íslenzku sendisveitinni í Wash-
ington má það marka, að þar sé
vel unnið að málum og til þess
var tekið, að óvíða hjá erlend-
um sendiráðum væri ambassa-
dorinn sjálfur jafnvirkur í dag-
legum störfum sendiráðs og hjá
því íslenzka.
Haraldur Kröyer hefur nýlega
tekið við stöðu ambassadors í
Washington, en áður var hann
sendiherra í Stokkhólmi og síðar
hjá Sameinuðu þjóðunum í New
York. FV hitti ambassadorinn að
máli fyrir nokkru ásamt Herði
Helgasyni, sem um árabil hefur
starfað við sendiráðið í Wash-
ington. Þar eð embætti sendi-
herra hjá Sameinuðu þjóðunum
og sendiherrans í Washington
voru sameinuð, er Haraldur
Kröyer fluttist til Washington,
spurðum við fyrst, hvað valdið
hefði þeim breytingum á starfs-
tilhögun íslenzku utanríkisþjón-
ustunnar.
— Hér er aðeins um tímabils-
bundna bráðabirgðaráðstöfun
að ræða, því að utanríkisráðu-
neylið hefur til þess óbreytta
afstöðu, að sendiherra þurfi að
vera á báðum stöðum, hér og hjá
Sameinuðu þjóðunum. Skipun í
cendiherraembættið þar hefur
ekki enn farið fram, þar eð til-
íölulega fáir af starfsmönnum
utanríkisþjónustunnar hafa haft
reynslu af störfum hjá Sa r.ein-
uðu þjóðunum. Raunar tók ég
það fram sérstaklega, þegar ég
var skipaður í þe';ta embætti, að
ég óskaði ekki eftir að gegna
báðum sendiherrastöðum til
lengri tíma.
Það hefur komið í ljós, að
full þörf er á að hafa tvo fasta-
fulltrúa hjá Sameinuðu þjóðun.
um.Nú hafa þær breytingar líka
orðið í New York, að aðalræðis-
FV 4 1973