Frjáls verslun - 01.04.1973, Blaðsíða 53
Frá Washington:
Staða Bandaríkjanna í heims-
viðskiptunum
— og efnahagsástandiö heima fyrir
Aðstaða Bandaríkjanna í alheimsviðskiptum og' efnahags-
þróunin heima fyxir eru helzta umræðuefni manna vestan
hafs um þessar mundii'. Jafnt stjórnmálamenn og opinber-
ir embættismenn sem allur almenningur hafa vaxandi áhyggj-
ur vegna halla í viðskiptum við útlönd, gengisfellingu doll-
arans og neikvæðra aðgerða helztu vina- og viðskiptaþjóða
í markaðsmálum.
John W. Holmes er yfirmaður
iþeirrar deildar bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, sem fjallar
um viðskiptasamninga við út-
lönd. Hann varð vel við þeirri
málaleitan Frjálsrar verzlunar
að skýra í megindráttum stöðu
Bandaríkjanna í milliríkjavið-
skiptum og þá stefnu, sem stjórn
landsins hyggst fylgja í þeim
efnum á næstunni.
EKKI EFNAHAGSLEGT
RISAVELDI
í upphafi vakti John W.
Holmes athygli á þvi, að Banda-
ríkin væru ekki lengur það efna-
hagslega risaveldi, sem það virt-
ist vera fyrir einum áratug eða
svo. Á árabilinu 1962-1972 jókst
útflutningur Bandaríkjanna
tvisvar og hálfu sinni, en inn-
flutningur jókst þrisvar sinnum
á sama tíma. Sagði Holmes þetta
glöggt dæmi um erfiða sam-
keppnisaðstöðu í alþjóðavið-
skiptum. Önnur vísbending um
þetta er sú, að árið 1962 nam
heildarútfiutningur Bandaríkj-
anna 17% af öllum útflutningi
ríkja annarra en kommúnista-
ríkjanna, en árið 1972 var þetta
hlutfall komið í 13.5%.
Holmes sagði, að þessar breyt-
ingar i verzlunarviðskiptum og
efnahagsmálum væru mjög
tengdar umskiptum í utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna. Fyrir ein-
um áratug hefðu hagsmunir
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna, einu risaveldanna í heim-
inum, rekizt á um heim alian.
Stefna Bandaríkjanna í einstök-
um heimshlutum hafi því mót-
azt meira og minna af mati á
valdaaðstöðunni hverju sinni.
Bandaríkin og Sovétríkin eru
enn einu risaveldin í hernaðar-
legu tilliti. En veldi Kína er vax-
andi. Og Japan og Vestur-Ev-
rópuríkin eru þegar orðin risa-
veldi í efnahagslegum skilningi.
BREYTT VIÐHORF
Meðal vestrænna lýðræðis-
ríkja njótum við ekki neinnar
sérstöðu eða samúðar fyrir göm-
ul vináttubönd. Samkeppnisaðil-
arnir í Evrópu og Japan leggja
sig mjög fram að keppa við okk-
ur, bæði hér heima og á hinum
erlendu mörkuðum. Kommún-
istaríkin eru líka að leysa sig úr
Framleiðni í bílaiðnaðinum bandaríska hefur aukizt gífurlega
með fullkomnari búnaði í bílaverksmiðjum, sem er að miklu
leyti sjálfvirkur. — Þessi mynd sýnir framleiðslu á Vega-bílum
hjá General Motors. Unx 95% allrar sambræðslu málmhluta í
bílana fer fram með sjálfvirkum tækjum.
FV 4 1973
53