Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1973, Side 39

Frjáls verslun - 01.04.1973, Side 39
sameiginlega i einum bæklingi en síðan verður ein þeirra, sem er með kraga úr gæruskinni, sér- staklega tekin fyrir og kynnt. Slík kynning leiðir yfirleitt af sér meiri sölu. Með litprentuðum upplýsingabæklingum í milljóna upplagi kynn- ir American Express íslenzka varninginn, sem fyrirtækið selur um bessar mundir. Póstkostnaður vegna einnar slíkrar kynning- ar hefur numið 175.000 dollurum. „DISCOVER ICELAND“. En það eru ekki aðeins ís- lenzkar kápur, sem American Express hefur augastað á. í und- irbúningi er umfangsmikil kynning á 10 íslenzkum fram- leiðsluvörum, sem hafin verður í ágúst næstkomandi en mun ná hámarki í janúar 1974. Verður hún í tengslum við 1100 ára af- mæli íslandsbyggðar. James A. Lancaster sýndi okk- ur efnismikil upplýsingarit, sem gefin hafa verið út til sams kon- ar kynningar á öðrum löndum og framleiðslu frá þeim, og er frágangur allur hinn vandaðasti og áhrif til upplýsingar um land og þjóð ótvíræð. Kynningin verður nefnd „Discover Iceland" og hefst á grein um land og þjóð, er prýdd verður litmyndum. Síð- an verða vörurnar kynntar; tvær mismunandi prjónakápur, sérstaklega hannaðar fyrir Am- erican Express, silfurbelti fyrir konur, sem hönnuð eru eftir 700 ára fyrirmynd úr Þjóðminja- safni íslands, annað bélti fyrir bæði karla og konur með munstri, sem sótt er til Þjóð- minjasafnsins, bikarar úr sterl- ing-silfri, bjórkolla úr hraun- keramiki og sömuleiðis pottur úr sama efni. Þá verða líka í boði stólar og borð frá Kristjáni Siggeirssyni og eftirprentanir af 10 myndum Ásgríms Jónssonar listmálara. í kaupbæti ætlar American Express svo að bjóða myndabók- ina „Iceland, the Unspoiled Land“, frá útgáfufyrirtæki Ice- land Review. SÉRSTÆTT VÖRUVAL. Lancaster sagði, að kynning- arherferð þessi yrði að sjálf- sögðu mikil auglýsing fyrir ís- lenzka framleiðslu og næði hún langt út fyrir hóp þeirra, sem hafa American Express-kort. Önnur fyrirtæki, sem gefa út „credit-cards“, stunda svipaða sölustarfsemi en vöruvalið er þó með allt öðrum hætti og byggist einkanlega á tækjabúnaði ýmis konar eins og útvarpstækjum og hljómflutningsbúnaði. Sagði Lancaster, að aldrei áður hefði verið gerð tilraun til að selja með þessum hætti silfurbelti á $ 250 eða slól á $ 300 eins og American Express ætlar nú að reyna með íslandskynningunni. Til viðbótar við þetta sendi American Express út kynningar- bækling um reyktan, íslenzkan lax, sem reyna á að selja í Bandaríkjunum og sömuleiðis hefur kynning á íslenzkum prjónapeysum verið hafin. GOTT SAMSTARF. Lancaster sagði, að náin sam- vinna hefði verið við fyrirtækið Icelandic Imports í New York og Álafoss h. f. um framkvæmd þessara mála og hefði hún í hví- vetna verið hin ágætasta. Miklu lofsorði fór Lancaster um sam- starf við Pétur Pétursson, for- stjóra Álafoss, sem hann sagði að hefði reynzt lykilmaður við að koma þessum viðskiptum i kring. Aðspurður kvað Lancaster engin sérstök vandamál hafa komið upp í sambandi við ís- lenzku vöruna. Álafoss h.f. hefði haft eftirlit með kápuframleiðsl- unni og fulltrúar fyrirtækisins hefðu skoðað hverja einustu flík. Hefur engin kvörtun bor- izt frá bandarískum kaupendum vegna meintra galla. Hið eina sem Lancaster taldi þurfa end- urskoðunar við eru stærðirnar, sem gefnar eru upp á fatnaðin- um. I staðinn fyrir stærðirnar: ,,small“, „mediurn" og „large“ yrðu nú tekin upp númer. Með breytingum á stærðartáknum myndu fleiri kaupendur fást. Við spurðum að lokum, hvort þessi viðskipti væru komin á það stig, að takmörkuð framleiðslu- geta íslenzkra aðila gæti hindr- að eðlilega aukningu þeirra. Lancaster svaraði því til, að slík vandamál væru ekki í augsýn en hins vegar myndi American Ex- press hugsanlega getað stuðlað aðl aukinni fjárfestingu fram- leiðsluaðilanna á íslandi, ef með þyrfti, vegna þeirra góðu sam- banda sem American Express hefur við bankastarfsemi í Bandaríkjunum. FV 4 1973 39

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.