Frjáls verslun - 01.04.1973, Side 43
Frá hellunum í Luray í Virginíuríki. Þeir eru me'ðal sérkenni-
legustu hella í Bandaríkjunum og dropasteinarnir í þeim eru
geysifagrir.
þeirra á meðal hin stærstu,
bjóða útlendu ferðafólki 50%
afslátt af fargjöldum sínum á
næstum öllum leiðum með því
skilyrði, að höfð sé viðkoma á
þremur stöðum. Með þessu móti
má komast milli New York og
vesturstrandar Bandaríkjanna
fyrir 17.000 krónur, báðar leiðir.
Allmörg flugfélög bjóða ótak-
mörkuð ferðalög í 21 dag fyrir
16.000 krónur, og með langferða-
bílum Greyhound og Continent-
al Trailways er hægt að kaupa
ótakmarkaðar ferðir í 15 daga
fyrir 10.000 krónur. Þá veita
járnbrautirnar og bílaleigur út-
lendum ferðamönnum afslátt af
gjöldum sínum. Sum gistihús
gefa líka afslátt fyrir útlend-
inga, en nákvæmar upplýsingar
um kostnaðarhlið á ferðalögum
til Bandaríkjanna veita íslenzku
ferðaskrifstofurnar.
Þeim, er gerst þekkja reikn-
ast svo til, að ferðamaðurinn í
Bandaríkjunum megi gera ráð
fyrir að verja 25 dollurum á dag
í gistingu og mat miðað við
tveggja manna herbergi.
• Óþrjótandi
möguleikar
Möguleikar til ferðalaga í svo
stóru landi sem Bandaríkjunum
eru óþrjótandi. Landshlutar eru
gjörólíkir og sögulegar minjar
eru til vitnis um blæbrigðamun
á menningu fólksins, sem þá
byggja. Bandaríkin eru ekki það
allsherjar skuggahverfi ofbeldis
og viðurstyggðar, sem svo oft
hefur verið reynt að telja ís-
lendingum trú um. Bandaríkin
eru líka meira fyrir ferðamann-
inn en Niagarafossar, Yellow-
stone-þjóðgarðurinn eða Grand
Canyon, sem sjá má á svo mörg-
um litprentuðum póstkortunum.
í þessu víðáttumikla landi má
sjá mestu kosti og galla mann-
lífs í frjálsu samfélagi. Hvar-
vetna má líka greina ávexti
mannlegs hugvits í margs konar
furðuverkum og risafengnum
mannvirkjum. Þar eru sólheitar
baðstrendur, grænir skógar og
tær fjallavötn, skrælnaður eyði-
merkurgróður og frjósamar ekr-
ur.
Síaukin áherzla er lögð á
menningarstarf af ýmsu tagi,
þannig að listunnendur geta með
auðveldu móti fundið sitthvað
sér til hæfis og þá af því sem
bezt gerist í heimi listanna um
þessar mundir.
Það er sem sagt af ýmsu að
taka.
• Nýjar
slóðir
ferðamanna
Sá, sem ferðast til Bandaríkj-
anna mun að sjálfsögðu verja
einhverju af tíma sínum til að
skoða frægustu borgir eins og
New York og Washington. Eng-
inn verður heldur fyrir von-
brigðum með San Francisco,
sem er að flestra dómi fegursta
stórborgin í Bandaríkjunum.
Af hálfu U. S. Travel Service
er lögð áherzla á að kynna þá
möguleika til skoðunarferða í
Bandaríkjunum, sem fáir út-
lendingar hafa sennilega áttað
sig á, að eru fyrir hendi. í því
sambandi skulu hér nefndir fá-
einir eins og heimsóknir i borg-
ir og bæi, þar sem sögusvið lið-
inna alda birtist manni Ijóslif-
andi eða leyndardómar Indíána-
byggðanna í Suð-vesturríkjum
Bandaríkjanna. Skoðunarferðir
í stórkostlega dropasteinshella
víða um land og heimsóknir á
vínekrur og í vínframleiðslumið-
stöðvar njóta vaxandi vinsælda.
ð Minjasöfn
í gömlum
borgum
Gamlir „lifandi“ bæir, eru
fjölmargir á austurströnd
Bandarikjanna. í skugga skýja-
kljúfanna og iðandi stórborgar-
lífsins hefur að nýju verið blásið
lífi í fornar venjur, sem stund-
aðar eru daglega á þessum kyrr-
látu stöðum.
Starfsfólk, klætt búningum
frá hinum liðna tíma og önnum
kafið við störf forfeðranna, er
kjarni bæjarlífsins. Gestir geta
séð frumbyggja að störfum með
plóginn úti á akri eða hlustað
á hefðarmeyjarnar ræða um líf-
ið á plantekrunum í Suðurrikj-
unum.
Langflestir þessara bæja og
minjasafna eru á svæðinu frá
FV 4 1973
43