Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1973, Síða 66

Frjáls verslun - 01.04.1973, Síða 66
*«•©-♦ -♦-<> ♦ ♦♦ ♦ ♦ ♦ ♦ •♦♦ e o « o ♦ ♦ ♦-♦ ♦♦-« ♦♦-♦ ♦ ♦ ♦ ♦ 4 Fer5aþfónusta Loftleiða: ► ♦-♦♦-♦ ♦-♦ ♦-♦ o -♦♦ ♦ ♦ ♦♦ ♦-♦ ♦♦♦♦-♦♦-♦ Skipuleggur hálfsmánaðar- ferðir til Bandaríkjanna BEACH - DISIMEY WORLD ■ KEININEDYHÖFÐI IMEW YORK - IVIIAIVII í þessari ferð er flogið með Loftleiðum frá Keflavík til New York og dvalizt þar í fjórar nætur, sem þó >má skipta þannig að dvölin sé tvær nætur áður en ferðin til Florída er hafin og tvær nætur. þegar komið er til baka til New York. Farið er á föstudögum frá New York með fyrsta flokks langferðabíl, sem hef- ur snyrtiaðstöðu, og haldið sem leið liggur til Norður- Karólínuríkis, þar sem höfð er næturdvöl á luxus-,,mót- eli“, sem hefur öll þægindi upp á að bjóða svo sem sund- laug. Næsta dag er síðan haldið gegnum Georgíu-ríki til Or- lando í Florída, þar sem dval- izt verður í tvær nætur og þar meðal annars heimsóttur hinn rómaði skemmtigarður Disneyworld, sem ekki verð- ur með orðum lýst. Frá Orlando liggur svo leiðin á hina frægu baðströnd Miami Beach, sem af mörg- um er talin taka öllum öðr- um fram og þar dvalizt um kyrrt í fimm nætur. Fyrir utan hina rómuðu baðströnd og sterku sól býður Miami Beach upp á allt það sem hugurinn kann að girn- ast til afþreyingar og skemmtunar. Frá Miami eru skoðunarferðir daglega til forvitnilegra staða svo sem „Páfagaukaskógar“, veð- hlaupabrautanna í Hialia Park og síðast en ekki sízt til hins stórmerkilega lagar- dýrasafns, þar sem tamdir höfrungar leika hinar furðu- legustu listir fyrir áhorfend- ur. Að lokinni dvöl á bað- ströndinni er ekið til Kenn- edy-höfða og þar skoðuð geimferðastöðin og þau geim- för, sem notuð hafa verið í geimferðum Bandaríkja- manna. Að kvöldi þessa dags er komið til Jacksonville, sem flestir kannast við úr fréttum og þar gist. Að morgni heldur ferðin áfram noður eftir áleiðis til New York með einnar nætur dvöl í Norður-Karólínu. Leið- in, sem ekið er um, er á köfl- um stórfögur og gefur svip- mynd af bandarísku þjóðlífi utan stórborganna. Eftir komuna til New York gera menn ýmist að halda til Islands, eða dveljast um kyrrt í stórborginni, og gefst þeim kostur á að heimsækja fleiri staði áður en snúið er heim á leið. Innifalið í þessari ferð er: Flugferðir til og frá New York, ökuferðir á milli nefndra staða, gisting í 14 nætur auk þess morgunverð- ur og kvöldverður meðan dvalizt er á Miami Beach (5 dagar, 4 stunda skoðunarferð um miðbæ New York, Man- hattan), aðgangskort að Disn- eyworld garðinum ásamt nokkrum sérsýningum hans og síðast en ekki sízt skoðun- arferðir um geimstöðina á Kennedyhöfða (Cape Kenn- edy). Verð fyrir manninn er frá kr. 36.000.00. Fyrir þá, sem eingöngu vilja dveljast við sjó og sól- böð á Miami Beach er á boð- stólum 14 daga ferð þar sem dvalizt er í 13 nætur úti á Miami Beach og þá flogið þangað frá New York strax eftir komu Loftleiða. Sú ferð kostar frá 36.500 fyrir manninn og innifelur flugferðir og gistingu, en eng- ar máltíðir eða skoðunarferð- ir. Enn fremur eru í undirbún- ingi nokkrar aðrar ferðir til Ameríku, svo sem til vestur- strandarinnar. Einnig er hægt að skipuleggja sérstak- lega ferðir fyrir einstaklinga og hópa, hvort heldur er á kaupstefnur, orlofsstaði eða í náms- og kynnisferðir.. fSPORTVÖkUVERZlUNO Freyjugötu 1. — Sími 19080 og 24041. ALLT FYRIR SPORT OG VEIÐIMENN byssur — skotfæri — veiðistangir o m. fl. — Póstsendum. Stœrsta og fjölbreyttasta úrval landsins. Viðgerðaþj ónusta. 66 FV 4 1973
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.