Frjáls verslun - 01.04.1973, Page 87
annars eru þeir dauðadæmdir í
viðskiptalífinu.
GÓÐUR FRÁGANGUR
VÖRUNNAR
Bára sagði það leitt, hve
bandarískar vörur væru yfirleitt
í lágum metum hérlendis og
taldi að íslendingar ættu að
mestu eftir að uppgötva þetta
stóra og stórkostlega viðskipta-
land þar sem mætti fá allt milli
himins og jarðar við allra hæfi.
Verðflokka og þá um leið gæða-
flokka t. d. í fataiðnaðinum
sagði hún ákaflega marga og í
innkaupum sínum byrjaði hún
jafnan á að láta vita á hvaða
verði hún vildi kaupa. Sagðist
hún fylgja nokkuð amerískri
stefnu í verzlun sinni hvað varð-
aði útsölur, en stefnir að því að
losa sig við alla vöru hverrar
árstíðar í lok hennar, þannig að
verzlunin sé eingöngu með nýj-
ar tízkuvörur. Mismunandi verð
bandarísks fatnaðar sagði Bára
að mestu liggja í gæðuni hvers
efnis og frágangs, því að hönnun
væri ávallt fyrsta flokks jafnvel
í ódýrum fatnaði og væru fyrir-
myndir að miklu leyti frá tízku-
teiknurum Parísarborgar. Alla
vöru kvað Bára mjög vel merkta
með efnisgreiningu og leiðbein-
ingum um þvott, hreinsun o.þ.h.
GJAFAVÖRUR
Auk fatnaðar verzlar Bára
með ýmsa gjafavöru og hefur
í því skyni sérstakar gjafaum-
búðir. Þá verzlar hún með skart-
og skrautgripi ýmis konar og
undirfatnað kvenna. Á sínum
rúmlega 20 ára verzlunarferli
sagðist Bára vera komin með
nokkurn hóp fastra viðskipta- sín en þær eldri. Verzlunin er í
vina en ekki sagði hún að ungar sífelldum vexti og hefur verið
stúlkur kæmu síður í búðina til um árabil.
Nú! Já, nú
er rétti tíminn
til að hressa upp á
BÍLINN með áklæði
(Cover) frá ALTIKA.
mikið LITA- OG EFNAVAL.
DLIIKnBÚÐin
Hverfisgötu 72. SIMI 22677
KÖRTING ER VESTUR-ÞÝZK GÆDAVARA - Kynnist Körting - Kaupið Körting
Radíóhúsið s.f. Hverfisgata 40, sími 13920 Reykjavík
FV 4 1973
87