Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 51
eiga leið vöruflutningabílar,
sem fara í svo til alla landshluta.
Sem dæmi um framleiðslu-
magn nefndi Sigurður, að hjá sér
væru smíðuð 500—600 skatthol
á ári og hafa verið smíðuð frá
því að fyrirtækið tók til starfa
og á þeim orðið litlar breyt-
ingar.
Eitt af meiriháttar verkefnum
Nes-húsgagna eru smíðar á hús-
gögnum fyrir orlofsheimili Iðju
í Reykjavík hjá Svignaskarði.
Var það verk boðið út og reynd-
ist tilboðið frá Nes-húsgögnum
hagstæðast. Smíðuð hafa verið
samkvæmt því borð, stólar og
svefnbekkir, allt úr furu.
Nú sem stendur vantar vinnu-
kraft til starfa í verksmiðjunni,
að sögn Sigurðar. Hann sagði, að
koma þyrfti á aukinni fjölda-
framleiðslu og þá með samvinnu
verkstæða í húsgagnaiðnaðin-
um. Taldi Sigurður líka horfur
á, að með aukinni samvinnu
framleiðendanna mætti skapa
tækifæri til útflutnings fyrir
þau, t. d. til Bandaríkjanna.
Byggja nýtt íþróttahús
og félagsheimili
Guðmundur Ingi Waage, byggingameistari og hreppsnefndarmað-
ur við eina nýbyggingu sína.
í lok ferðar okkar um Borg-
arnes hittum við að máli Guð-
mund Inga Waage, bygginga-
meistara, en hann á sæti í
hreppsnefnd Borgarness. Guð-
mundur var að vinna við smiði
ánýju íbúðarhúsi í kauptúninu.
Eins og víðar er húsnæðisskort-
ur áberandi í Borgarnesi bæði
vegna þess að ungt fólkástaðn-
um vill halda tryggð viðheima-
byggðina og aðflutningar eru
nokkrir. Byggingarkostnað seg-
ir Guðmundur Ingi nokkuð
iægri en gerist í Reykjavík og
nefndi hann sem dæmi að verð
á 4-5 herbergja íbúð í fjölbýlis-
húsi, tilbúinni undir tréverk,
væri nú 2 milljónir.
Guðmundur Ingi hefur unnið
við húsbyggingar í Borgarnesi í
10 ár og á þessu ári byggir hann
rúmlega 20 íbúðir.
Af framkvæmdum hreppsfé-
lagsins nefndi Guðmundur Ingi
fyrst smíði íþróttahúss, en búið
er að sprengja fyrir grunni þess.
Fyrsta áfanga á að verða
lokið í september á næsta ári en
kostnaðaráætlun fyrir allt verk-
ið hljóðar upp á 70 milljónir.
Þá er verið að vinna að gerð
viðbyggingar við elliheimilið og
læknamiðstöð. í henni verður
aðstaða fyrir lækna og Ijósmóð-
ur og sömuleiðis sjúkrarúm til
notkunar í neyðartilfellum en
annars er gert ráð fyrir, að
sjúkrahúsið á Akranesi þjóni
íbúum Borgarness.
Vandræðaástand hefur ríkt i
húsnæðismálum félagsstarfsem-
innar í Borgarnesi en úr því er
fyrirhugað að bæta með því að
byggja við hótelið og gera þar
samkomusal og fundaherbergi,
þannig að aðstaða, sem þegar er
fyrir hendi í hótelinu nýtist
einnig.
— Mál málanna hér um þess-
ar mundir er brúarmálið, sagði
Guðmundur Ingi. Alllengi hefur
verið áformað að gera brú yfir
Borgarfjörð, frá Seleyri undir
Hafnarfjalli og á land hinum
megin fjarðarins, rétt ofan við
Borgarnes. Þarna er grunnt, svo
að brýrnar sjálfar verða fremur
stuttar en þeim mun meiri upp-
fylling. Síðasta kostnaðaráætl-
un gerði ráð fyrir, að brúargerð
yfir Borgarfjörð myndi kosta
400—500 millj. króna.
Með tilkomu brúar yfir Borg-
arfjörð styttist landleiðin frá
Reykjavík til Borgarness um 30
kílómetra og leiðin vestur eða
norður í land um 10 kálómetra.
Af þessu yrðu mikil þægindi
fyrir íbúa Borgarness og gera
má ráð fyrir að framkvæmdin
hefði veruleg áhrif á efnahag
kauptúnsins því að ferðamanna
straumur um það myndi aukast
til muna og þar af leiðandi þjón-
usta sömuleiðis.
FV 8 1973
51