Frjáls verslun - 01.08.1973, Qupperneq 53
Stykkishólmur:
Smíða húsgögn og skip og verka skel
Stykkishólmur.
Atvinnuleysi hefur ekki
þekkzt í Stykkishólmi síðustu
fjögur árin að sögn sveitarstjór-
ans þar, Einars Flygering. Þar
búa nú 1050 manns og er aðal-
atvinnuvegur í kauptúninu iðn-
aður.
Við fiskiðnað vinna að jafnaði
60—80 manns, þar af 50—60 í
frystihúsi Sigurðar Ágústssonar,
en það hefur verið lokað í sum-
ar, þar sem á því hafa farið fram
gagngerar endurbætur. Það er
þó í þann mund að opna aftur
eftir breytingarnar og verður
fyrst um sinn unninn hörpu-
diskur úr skel. í Skelfiskvinnslu
Stykkishólms h.f., þar sem
vinna 15-20 manns, voru frá
áramótum og fram í júní unn-
in 1200 tonn af hörpudiski.
Hafnarstæði í Stykkishólmi er
gott að sögn Einars Flygering,
en öll mannvirki orðin léleg og
er nú verið að hefjast handa
um endurbyggingu og endur-
nýjun þeirra. 7-8 bátar eru
gerðir út frá Stykkishólmi.
Þrjár trésmiðjur starfa í
Stykkishólmi, Trésmiðja Stykk-
ishólms h. f. og Trésmiðjan Ösp
h. f. svo og húsgagnagerðin Aton
sem framleiðir sérstæð húsgögn
sem seld eru víða um land. Hin-
ar trésmiðjurnar vinna alhliða
trésmíðavinnu og selja fram-
leiðslu sína víða á Vesturlandi.
SMÍÐA SKIP FYRIR
STOKKSEYRINGA.
Skipasmíði er áratuga gamall
iðnaður í Stykkishólmi og er
nú stundaður hjá Skipasmíða-
stöðinni Skipavík h. f. í sam-
vinnu við Vélsmiðju Kristjáns
Rögnvaldssonar sem sér um alla
járnsmíða- og vélavinnu. Þessi
skipasmíðastöð er nokkurra ára
gömul og er nú að vinna við 14.
eða 15. skip sitt. Þetta eru tré-
skip sem þarna eru smíðuð, yf-
irleitt 50—75 tonn að stærð og
hefur langmestur hluti þeirra
verið seldur til Stokkseyrar. í
skipasmíðastöðinni starfa um 35
manns.
Stykkishólmsbúar eru nú að
koma sér upp nýrri vatnsveitu,
sem full þörf er fyrir að sögn
sveitarstjórans. Er hún úr upp-
sprettu í Svelgsárhrauni um 14
kílómetra frá bænum. Þetta er
geysidýrt fyrirtæki, fyrir ekki
stærra bæjarfélag, eða um 20
milljónir sá áfangi sem tekinn
verður í notkun í haust, en hann
er aðeins 8V2 km að lengd,
og verður þá tengdur inn á
gamla kerfið. Töluvert hefur
einnig verið unnið að endurnýj-
un holræsa í bænum og ný hol-
ræsi lögð.
VANTAR NÝTT SKIPULAG.
Stykkishólmsbúar eru ó-
ánægðir með afgreiðslu Skipu-
lags ríkisins á skipulagi fyrir
Stykkishólm, sem að sögn Ein-
ars stendur byggingum í bæn-
um verulega fyrir þrifum. 16—
18 lóðum undir einbýlishús hef-
ur verið úthlutað það sem af er
árinu og töluvert liggur fyrir
af óafgreiddum lóðaumsóknum,
sem vegna skorts á skipulagi er
ekki hægt að afgreiða. Húsnæð-
isskortur er tilfinnanlegur í
bænum þó mikið hafi verið
byggt á undanförnum árum.
Nýtt félagsheimili og hóteler
í byggingu í bænum, og hefur
þegar verið kostað til þess 33
milljónum, en annað eins mun
vanta til að fullklára það. Þó
hefur þegar verið dansað nokki';
um sinnum í félagsheimilinu. í
athugun er að byggja nýtt skóla-
hús því þrengsli eru í gamla
skólanum, sem nú rúmar bæði
barna- og gagnfræðaskólastigið.
Nýr flugvöllur er í byggingu við
Stykkishólm, 1100 metra lang-
ur, en flugsamgöngur eru nú
góðar við bæinn og er áætlunar-
flug þangað 5 sinnum í viku.
Þrjár verzlanir eru í Stykkis-
hólmi og er Verzlun Sigurðar
Ágústssonar h. f. þeirra stærst.
Hinar eru Kaupfélag Stykkis-
hólms og Verzlunin Þórshamar.
Samkvæmt nýjum lögum
verður læknamiðstöð í Stykkis-
hólmi sem þjóna mun Snæfells-
nesinu, Dölunum og hluta Borg-
arfjarðar. Þar er nú starfandi
sjúkrahús sem rekið er a.f St.
Fransiskusarreglunni í Hollandi
og starfa þar 10—12 nunnur.
Þær eru ótrúlega afkastamiklar
því auk sjúkrahússins reka þær
í Stykkishólmi prentsmiðju og
barnaheimili, þar sem daggæzla
er á veturna en aðkomubörn tek-
in til dvalar á sumrin. Á sjúkra-
húsinu er rúm fyrir um 30 legu-
sjúklinga en þar er einnig vist-
heimili fyrir vangefnar konur.
Að sögn Einars Flygering hef-
ur ferðamannastraumurinn auk-
izt greinilega mikið í Stykk-
ishólmi undanfarið. Þar er rek-
ið sumarhótel og vegna mikillar
eftirspurnar er algengt að fólk
leigi út herbergi í heimahúsum
fyrir ferðamenn.
Stykkishólmur hefur verið
löggiltur verzlunarstaður síðan
árið 1794 og sagði sveitarstjóri
okkur að Oscar Clausen rithöf-
undur væri nú að vinna að gerð
verzlunarsögu Stykkishólms
fyrir bæjarfélagið.
FV 8 1973
53