Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 71
Jéhann Ágústsson, starfsmannastjóri Landsbankans;
Nálægð Austurstrætis við höfnina
gefur götunni „sjarma”
Jóhann Ágústsson starfs-
mannast.ióri Landsbanka Is-
lands er miðbæjarbarn, ef
svo má að orði komast. Hann
hefur starfað við Landsbanka
íslands síðan 1949, oftast í
Austurstræti u.tan þeirra ára
er hann var bókari og síðar úti-
bússtjóri á Laugavegi 77. Hann
er fæddur rétt við Laugaveg-
inn og alinn þar upp og báðir
afar hans áttu hús við Lauga-
veginn. Enda finnst honum, ef
hann bregður sér út fyrir land-
steinana, hann ekki vera kom-
inn heim fyrr en hann er kom-
inn niður á Laugaveg og í
Austurstræti. Hann hefur nú
skrifstofu á efstu hæð Lands-
bankahússins við Austurstræti..
Jóhann sagðist vera afar
ánægður með lokun götunnar
fyrir bílaumferð, þó finnst
honum að borgin hafi enn ekki
gert nægar úrbætur varðandi
bílastæði og aðkeyrslu að mið-
bæ.iarkjarnanum til að viðun-
andi geti talizt og er hann
hræddur um að ef ekki verður
að gert muni sala í verzlunum
detta niður þegar mesta nýja-
brumið er farið af þessari fram-
kvæmd. Að hans áliti verður
sjálf gatan mun skemmti-
legri, hávaðinn færist burtu
og þarna myndast griðland
göngumanna. Margir hafa
hingað til metið það mikils að
ganga niður að höfn þar sem
hægt er að vera óáreittur í svo
mikiili nálægð við umferðjna.
FÓLKIÐ FARI í STÆTÓ
í Landsbankanum vinna ná-
lægt 200 manns. Við spurðum
Jóhann hvort þetta fólk stuðl-
aði ekki, ásamt öðru starfsfólki
við götuna, að enn meiri vanda
varðandi bílastæði en vera
þyrfti með því að koma á
einkabílum til vinnu. Hann við-
urkenndi að svo væri, og nefndi
dæmi því til sönnunar um mann
sem vinnur í þankanum og býr
vestur á Melum. Hann hefur
oft, eftir að hafa ekið um bæ-
inn í leit að stæði, þurft að
leggja bíl sínum vestur við
Þjóðminjasafn. Sjá allir hversu
mikið hagkvæmara það væri
fyrir manninn sjálfan og aðra
borgarþúa ef hann hefði tekið
stræLisvagn á næsta horni við
heimili sitt, sem stanzar svo
um 100 m frá Landsbankanum.
Sagðist Jóhann álíta að það
myndi þera góðan árangur ef
borgaryfirvöld hæfu áróðurs-
ferð og hvettu fólk sem vinnur
í miðbænum til að skilja bif-
reiðar sínar eftir heima og
nota strætisvagnana.
ELDRA FÓLKIÐ KEMUR
í AÐALBANKANN
Landsbanki íslands rekur nú
6 útibú í Reykjavík og fer
starfsemi þeirra sívaxandi.
Sagði Jóhann að það væri aðal-
lega eldra fólk sem heldur
vildi fara niður í aðalbanka
með viðskipti sín, yngra fólk
og fyrirtæki utan miðbæjarins
kysu fremur að verzla og eiga
sín viðskipti þar sem aðgangur
væri greiðari og bílastæði næg.
Með gjaldeyrisviðskipti verður
þó að sækja í aðalbankann eða
Múlaútibú Landsbankans.
Landsbanki Islands var stofn-
aður 1885 og hafa mörg elztu
fyrirtæki landsins haft við-
skipti sín við bankann frá upp-
hafi, þó mörg þeirra hafi flutzt
í útibúin.
Jóhann sagðist nýlega hafa
verið að skoða útlit gamla
miðbæjarkjarnans, frá Lauga-
vegi og niður úr, og undrazt
með sjálfum sér hversu lítið í
raun og veru hefði breytzt síð-
ustu 20—30 árin og hve mikið
stæði af þeim húsum sem hann
myndi eftir frá því hann var
barn. Honum finnst bað alveg
nauðsynlegt að eitthvað af bess-
um gömlu húsum fái að standa,
þó ekki sé sanngjarnt að láta
þau í öllu standa í vegi fyrir
ný.jungum.
Jóhann Ágústsson, starfsmannastjóri Landsbankans.
FV 8 1973
71