Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Page 86

Frjáls verslun - 01.07.1974, Page 86
Málning hf. Samvinna við erlendar málningar- verksmiðjur Einn af starfsmönnum hjá Málning h/f við framleiðslustörf. Málning hf. var stofnað í janúar 1953 að Kársnesbraut 32 í Kópavogi, þar sem hún er enn til húsa. Upphaflega var húsnæðið, sem fyrirtækið hafðd til um- ráða aðeins 60 fermetra að stærð og framleiðsluvörur voru málning og dúkalím. Nú er fyrirtækið starfrækt í 2000 fermetra húsnæði, og vinna þar 55 manns, sem sjá um framleiðslu á límum, hús- gagna- og gólflökkum, þétti- efnum, bæsum og málningu. Plastmálning er stærsti liður- inn, eða um 20% af heildar- sölunni. Eigendur fyrirtækisins eru Baldvin Einarsson, Björn Hall- dórsson, Kolbeinn Pétursson, Eggert Kristinsson og Hall- dóra Samúelsdóttir. Fram- kvæmdastjóri er Ragnar Þór Magnússon. Fyrirtækið hefur alla tíð unnið í samvinnu við erlend- ar málningarverksmiðjur, til að tryggja gæði þeirrar vöru, sem er á boðstólnum. Lengst fram- an af var unnið í samvinnu við bandaríska verksmiðju, en árið 1973 hófst samstarf við dönsku verksmiðjuna Dyrup og Co., og er hún með stærstu verksmiðiium sinnar tegundar í Danmörku. Samvinnan er að- allega á sviði plastmálningar og nýtur Málning góðs af framförum, sem fram koma hjá verksmiðjunni, jafnframt því að hafa aðgang að rann- sóknarstofu hennar. Þá hefur Málning einnig flutt inn vörur frá Dyrop, sem ekki eru fram- leiddar hérlendis, til að gefa viðiskiptavinum kost á sem mestu úrvali. LYKTARLAUST VATNSLAKK. Ein nýjasta uppfinningin á sviði málningarvöru í heimin- um, er vatnslakk, sem kemur í staðinn fyrir olíulakk. Máln- ing hf. framleiðir þetta nýja lakk, undir nafninu Kópal- hitt, og sagði Ragnar Magnús- son, framkvæmdastjóri, að vatnslakkið væri ekki eins vandmeðfarið og olíulakkið, auk þess er það lyktarlaust. Vatnslakkið er slitsterkara, en málning. og hægt er að nota það utanhúss, sem innan á tré stein og járn. Það er nýjung að vatnsþynnt efni sé notað á járn. Siðast en ekki sízt er það stór kostur á tímum mengunar, að nota vatn í stað- inn fyrir olíu við framleiðslu. 800 LITIR. Um leið og samvinnan við Dyrop 'hófst, tók Málning hf. upp nýtt kerfi í sambandi við litaval á málningu. Þá var byrjað að framleiða málningu eftir dönsku og sænsku lita- kerfi, sem hægt er að blanda með litarefnum í þar til gerð- um vélum, sem eru í verzlun- um. Með þessari nýju aðferð er hægt að ná fram 800 mis- munandi litum í úti — sem innimálningu. Hvað viðkemur utanhúss- málningu (Kopal dyrotex) eru einnig framleiddir 11 stand- ardlitir. Þessum litum er síðan hægt að blanda innbyrðis og ná þannig fram 40-50 litum. Litaspjöld liggja frammi í verzlunum, og á þeim standa blöndunarreglur fyrir hvern lit. FYLGJAST VEL MEÐ FRAMLEIÐSLUNNI. Að lokum má geta þess að Málning hf. starfrækir rann- sóknarstofu, og vinna við hana tveir verkfræðingar og tveir aðstoðarmenn. Tilgangur rann- sóknarstofunnar er fyrst og fremst sá að fylgjast með framleiðslunni, til að tryggja gæði hennar, og auk þess er sifellt verið að prófa nýjar framleiðsluvörur, og reynt að koma öllum uppfinningum, sem fyrst á markaðinn. 86 FV 7 1974

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.