Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1974, Síða 93

Frjáls verslun - 01.07.1974, Síða 93
„Verktakafyrirtæki eins og verka- maður á eyrinni9’ Rætt við Pál Sigurjónsson framkvæmdastjóra og Einar Sigurðsson yfirverkfræðing hjá Istak „Erfiðast við rekstur verk- takafyrirtækis á íslandi er hve markaðurinn er lítill og stór- verkefnin tiltölulega fá og langt á milli þeirra. Þetta 'hef- ur þó aðeins lagast á síðustu árum. Þá eru verðþólgan, spenna á vinnumarkaðnum og skortur á rekstrarfjármagni oft þrándur í götu“ sögðu þeir Páll Sigurjónsson fram- kvæmdastjóri fstaks og Einar Sigurðsson yfirverkfræðingur fyrirtækisins, er F. V. hitti þá að máli í aðalstöðvum ístaks í húsi íþróttahreyfingarinnar í Laugardal, en fyrirtækið er nýlega flutt þangað. Við spyrjum þá félaga fyrst um aðdragandann að stcfnun fyrirtækisins. — Fyrirtækið var stofnað árið 1970 og voru stofnendur þess, Páll Sigurjónsson, Einar Sigurðsson, Jónas Frímanns- son, Kay Langvad, Sören Langvad og Gunnar Möller. Hinir fimm fyrsttöldu eru all- ír verkfræðingar og höfðiu starfað hjá Fosskraft, en Gunnar er lögfræðingur. Segja má, að fyrirtækið hafi verið stofnað er verkum Fosskraft lauk hér á landi. Við stofnuð,- u.m þá fyrirtækið fslenzkt verktak hf. — ístak, sem bauð í Vatnsfellsveitu I, en það er vatnsmiðlunarskurðurinn úr Þórisvatni. Við fengum það verk fyrir 70 milljónir, en svona til að gefa mynda af því, hvernig tilboð verktaka geta verið, má geta þess að annað tilboð hljóðaði upp á 90 millj- ónir og hið þriðja upp á 170 milljónir. í þessu verki gróf- um við burtu um 1,2 milljónir rúmmetra, eða sem svarar 2 milljónum lesta. Við þessa framkvæmd störfuðu milli 60- 70 manns, auk þess sem við vorum með stórvirkar vinnu- vélar, sem, eins og gefur að skilja, voru nauðsynlegar til að geta framkvæmt verkið. 1971 sömdum við svo um Vatns- fellsveitu II, sem var stíflu- gerðin í veituskurðinum og veituskurðinn út í Þórisvatn. Því verki lukum við á sl. hausti. í þær framkvæmdir fóru 6500 rúmmetrar af steypu. Þetta var upphafið að okkar starfsemi. — Hvað er hlutaféð mikið hjá fyrirtækinu? — Það var í upphafi 10 milljónir, en hefur nú verið aukið i 25 milljónir. VERKEFNIN. — Þið hafið auk þess feng- ist við ýmisleg stórverkefni á sl. árum. — Já, það má segja að starfsemin hafi gengið nokk- uð vel hjá okkur. Við lögðum tvo vegakafla á Suðurlands- vegi, kaflann frá Rauðavatni upp að Lögbergi og kaflann frá Hveradölum niður Kamba, en þetta voru verk upp á 213 milljónir. Þá lögðum við kafl- ann úr Kollafirði, sem nýlok- ið er við, sem kostaði 80 millj. og nú íhöfum við nýlega gert samning um að leggja fyrir Vegagerð ríkisins 14 km af varanlegum vegi frá Selfossi að Skeiðavegsafleggjaranum. Þetta verk tökum við ásamt Sveinbirni Runólfssyni og er udp á 170 milljónir. Þá má nefna, að við byggðum hús Vladimars Askenasys, birgða- stöð Rafmagnsveitu Ríkisins og erum nú með framkvæmdir við lagningu hitaveitu til Hafnarfjarðar, sem er verk upd á 90 milljónir, stækkun Mjólkárvirkjunnar, 140 millj. króna, auk vikurhreinsunar í Vestmannaey.ium, sem er um 50 milljónir. Þar ökum við úr bænum um 17000 lestum af vikri á sólarhring. Auk þess reisum við nú 38 einbýlishús í Eyjum fyrir Hamar sf. Þá er- um við um þessar mundir að ganga frá samningi um stærsta verkið, sem við höfum tekið að okkur, en það er stækkun hafnarinnar í Þor- lákshöfn og hljóðar samning- Einar Sigurðsson, yfirverkfræðingur, og Páll Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri. FV 7 1974 93 L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.