Frjáls verslun - 01.04.1975, Page 7
í stuttu máli
9 Tafir á afgreidslu
efnahagsráðstafanna
Frumvarp það sem lagt var fram á
Alþingi fyrir páska tafðist alllengi í
meðförum þingsins. Sérstaklega er hætt
við að þessi dráttur verði til þess að
erfitt verði að framkvæma ákvæði
laganna um niðurskurð svo að um muni.
Því lengra sem líður á árið þeim mun
bundnari verða hendur hins opinbera.
Sömuleiðis virðist margt óljóst varðandi
skiptingu lánsfjár milli einstakra
viðfangsefna og sjóða.
§ Verðlag og fyrningar
I meðferð Alþingis á frumvarpinu til
laga um efnahafsráðstafanir kom inn
ákvæði til skerðingar svonefndrar stuð-
ulfyrningar hjá atvinnurekstrinum. Átti
verðhækkunarstuðull lausafjár að
hækka um 70% fyrir árið 1974 en með
lögunum cr hann ákveðinn 49%. Svo
virðist sem menn liafi ekki gert sér grein
fyrir hvað þetta nýmæli þýddi þegar
það var lögleitt af vinstri stjórninni
1972. Sá flokkur sem innlciddi hana
barðist nú fyrir ])ví að fá hana skerta.
Eðlilegast væri að endurskoða fyrning-
arreglurnar í heild fremur en krukka í
þær hér og þar.
§ Slungin tilboð
Greinilegt er að seljendur stórra ein-
inga spila á ýmsa viðkvæma strengi
væntanlegra kaupenda, enda væri annað
sennilega léleg sölumennska. Þetta
hefur komið berlega í Ijós við tilboð
flugvélaframleiðenda til þcirra ríkja
Atlantshafsbandalagsins sem hyggjast
gera sameiginleg innkaup til endurnýj-
unar vélakosti sínum, l>.e. Starfighter-
vélunum. Þannig liafa Svíar lieitið því
að kaupa svo og svo mikið af einstökum
vélahlutum og öðrum varningi í Dan-
mörku, ef Danir kauj)a Viggenvélarnar
af Saabverksmiðjunum. Ekki er enn
vitað um málalok.
9 Orlof á bondabýlum
Bændur hafa tekið upp á þeirri ný-
breytni að leigja kaupstaðarbúum hús-
næði yfir sumarið og gefa þeim þannig
kost á að kynnast landbúnaði og sveitar-
sælu. Hel’ur þetta mælst vel fyrir og er
þetta framtak bænda bæði athyglisvert
og lofsvert.
§ llr brjóstvasa ■ vestisvasa
Það hlýtur að koma að þvi fyrr en
síðar að sjóðakerfi sjávarútvegs verði
stokkað upp. Yfir dynur hver ráðstöf-
unin á fætur annarri með tilfærslu milli
vinnslu og veiða og úr einum sjóði í
annan. Fyrir utan áhril' á þjóðarhaginn
til langs tíma er mikið af tilfærslunum
sjónhverfingar þvi að reksturinn er oft
undir sama hatti. Sömuleiðis veldur
þetta eilifum deilum um fiskverð og
réttlát hlutskipti, sem engin botn fæst í
nema litið sé á allt sjóðakerfið og til-
færslunar í því sambandi. Ætti það að
verða öllum aðiljum mikill léttir að
greitt yrði úr flækjunni.
§ IXÍorsk sjóefnavinnsla í
Hollandi
llljótt hefur verið um sjóefnavinnslu
á Reykjanesi að undanförnu. Hinsvegar
er vitað að slík verksmiðja er í smíðum
í Noregi og verður tilbúin árið 1977.
Enn fremur er Norsk Hydro að kanna
ásamt dótturfyrirtæki Shell í Hollandi
hvort ekki megi hagnýta mikinn l'orða
sjávarsalts í Hollandi. Verður stuðst við
nýjar framleiðsluaðferðir sem gætu
verið lorvitnilegar fyrir Islendinga.
§ Ráð í tíma tekið
Vestur-Þjóðverjar eiga nú aðeins
nokkurra vikna birgðir af úranium til
rafmagnsframleiðslu í kjarnorkuverum
sínum. Ástæðan er sú að Bandaríkja-
menn hafa neitað áð sclja þeim meira
magn ncma j)eir geri varúðarráðstaf-
anir til að koma í veg fyrir að hryðju-
verkamenn komist yfir hráefnið. Þeir
einu sem ella geta selt úraníum eru
Rússar en Vcstur Þjóðverjar hal'a
einnig keypt talsvert magn af þeim
síðustu ár. Hins vegar getur þetta liaft
stórpólitískar og hemaðarlegar afleið-
ingar. En ekki er ráð nema í tíma sé
tekið.
FV 4 1975
7