Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1975, Page 28

Frjáls verslun - 01.04.1975, Page 28
í öðru sæti, segir í bókinni, en afkoma almennings í fyrsta, þegar hagsmunaágreiningur kemur upp milli þessara tveggja flokka. Leggja ber meiri áherslu á almenna þjónustu en einka- neyslu, segir einnig í Hvítu bókinni. Þar eiga Norðmenn t. d. við að bæta beri heilbrigðis- þjónustu, auka langskólagöngu og fjölga dagheimilum fyrir börn, sem ekki eru komin á skólaskyldualdur. Gert er ráð fyrir verulegri aukningu á þess- um liðum samhliða auknum tekjum þjóðarbúsins. Þá ber að leggja áherslu á bætt umhverfi íbúanna, með því að gera t. d. umhverfi vinnustaðar þægilegra og auka og endur- bæta húsakost þjóðarinnar al- mennt. Þrátt fyrir þessi atriði, verður afkoman fram til 1980 svo góð, að árleg aukning einkaneyslu verður 4,3%. NÆG ORKA í 100 ÁR í Hvítu bókinni segir, að náttúruvandamálið sé alþjóð- legt og staða Noregs á alþjóð- legum vettvangi sé mjög góð, vegna þess að landið býr nú yfir miklum náttúru- og elds- neytisauðæfum. Að mati ríkis- stjórnarinnar eru ýmsar viðsjár í orkumálum framundan og tel- ur hún, að þróun olíuverðs sé snar þáttur í því máli. í bók- inni er varað við því, að efna- hagsvandinn í heiminum kunni að hafa langvarandi áhrif á Noreg. Bent er á, að Noregur geti best haft áhrif á þessa þróun, með því að vinna að því að hin auðugu iðnríki dragi úr of mikilli eldsneytisnotkun sinni. Noregur notar ekki hlut- fallslega mikið af óbætanlegum eldsneytistegundum (olíu og gasi) miðað við aðrar iðnþjóðir, en engu að síður ber þjóðin hluta af ábyrgðinni í að beina þróun orku- og eldsneytismála inn á rétta braut, segir í bók- inni. Tekið er fram, að orku- skorturinn verði ekki átakan- legur næstu hundrað árin, en engu að síður beri að fara að öllu með gát í þeim efnum. HLUTSKIPTI FÁTÆKU RÍKJANNA Aðalvandi mannkynsins nú á tímum er ekki of lítið hráefna- framboð, heldur hlutskipti hinna fátækustu hluta jarðar- innar, að dómi norsku stjórnar- innar. Aukin efnahags- og þró- unaraðstoð Noregs á að bein- ast að því hlutverki, að hraða tilfærslu auðs úr höndum hinna efnaðri ríkja til hinna fátæku. Noregur verður að sætta sig við aðgerðir fátæku ríkjanna, til að knýja fram hærra verð fyrir hráefni, sem þau selja iðnríkj- unum, sjálfum'sér til lífsviður- væris. Hvíta bókin segir, að þróunarríkin verði sjálf að bera ábyrgð á eigin þjóðfélags- og stjórnmálaþróun. Noregur geti veitt þeim aðstoð, sé þess óskað og þá í völdum tilfellum. LÍFSAFKOMA NORÐMANNA Umhverfisvernd og endur- bætur á lífsafkomu lands- manna, eru tvö aðalefni Hvítu bókarinnar. T. d. á að leggja mikla áherslu á að draga úr loftmengun, vernda líffræði- lega hlið umhverfisins, nýtingu úrgangs, og Noregur á að taka frumkvæði í gerð alþjóðlegra sáttmála um nýtingu auðlinda heimsins. Noregur verður einn- ig að gefa gaúm tilraunum þró- unarríkjanna til að auka út- flutning sinn. Stjórnin ætlar að leggja mikla áherslu á það heima fyrir, að bæta heilsufar og vinnuumhverfi launþega, og jafnframt draga skipulega úr flutningi fólks til borganna, með áframhaldandi uppbygg- ingu byggðastefnu og aukinni dreifingu framleiðslutækja út um landsbyggðina. Hagsmunir neytandans verða að vera grundvallaratriði varðandi markaðskönnun og vörufram- leiðslu. Þá segir í Hvítu bókinni, að olíutekjurnar eigi að skapa grundvöll til að takmarkið „vinna fyrir alla“ náist. Hér er átt við aukna atvinnumögu- leika fyrir konur og meira jafn- rétti kynjanna á vinnumarkað- inum. Stjórnin heitir nýjum lögum um jafnrétti kynjanna og að auka framboð hálfsdags- vinnu og venjulegri fjölgun dagvistunarheimila. Vélsmiðjan hf. VIÐ HAFNARBRAUT, AKRANESI. SÍMAR 93-1487 OG 93-1725. • JÁRN- OG VÉLSMÍÐI • VÉLAVIÐGERÐIR • RENNISMÍÐI • NYSMIÐI Vélsmiðjan hf. AKRANESI. 28 FV 4 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.