Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 45
Þessi mynd var tekin er hraðfrystur fiskur var í fyrsta sinn flutt-
ur vestur um haf með Loftleiðum. Það var gert á vegum Sambands
ísl. samvinnufélaga.
leyti með svipuðum hætti og
hjá öðrum þjóðum, að flutning-
ur farþega hefur setið í fyrir-
rúmi fyrir vöruflutningum. Far-
þegar, farangur þeirra og einn-
ig póstur, hafa yfirleitt forgang
á flutningsrými í áætlunarferð-
um flugfélaganna, innanlands
og milli landa, og aðeins í litl-
um mæli innanlands eru hafnar
sérstakar áætlunarferðir með
vörur eingöngu. Meirihluti
farmflutninga íslenzku flugfél-
aganna fer fram með svipuðum
hætti og mest tíðkast erlend-
is, þ. e. a. s. í lestum flugvél-
anna þar sem farangur farþeg-
anna er jafnframt geymdur og
er því flutningsgetan í hverri
ferð nokkuð háð því rými, sem
eftir verður þegar búið er að
koma fyrir farangri, eða a. m.
k. áætla rými fyrir farangur. Á
þeim árstimum sem farþega-
flutningar eru í hámarki getur
því oft orðið minna rými fyrir
vörurnar, en gert hafði verið
ráð fyrir, ekki sízt ef meirihluti
farþega eru íslendingar, en far-
angur þeirra vill oft verða í
meira lagi.
Vörur eru :þó fluttar í öllum
áætlunarferðum ísl. flugfélag-
anna að heita má, bæði á inn-
anlands og millilandaleiðum,
enda yfirleitt nokkuð rými
eftir þótt hvert sæti sé skipað,
t. d. fyrir u. þ. b. 5 lestir í DC8-
63 flugvélum Loftleiða og 2-3
lestir í Boeing-vélum Flugfé-
lagsins. Millilandavélar beggja
félaganna eru líka með bún
aði, sem gerir flutning vöru-
palla mögulegan þegar far-
Flugvélar F. í. fluttu í fyrra
4800 lestir af vörum á flugleið-
um innanlands.
þegarými er ekki fullnýtt, þ. e.
a. s. stórum frakthurðum og
styrktum gólfum o. fl. nauðsyn-
legum atriðum. í Boeing-vél-
unum er sá háttur hafður á, á
vetrum, að í meirihluta ferða
eru þær með tvo vörupalla á
kostnað farþegarýmis. Ein af
Fokker-flugvélunum er einnig
búin frakthurð, jafnframt því
sem þær eru allar fimm með
hreyfanlegum skilrúmum þann-
ig að auðvelt er að auka vöru-
rými eftir þörfum og kemur
það að góðum notum.
7800 LESTIR í FLUGI
í FYRRA
Á s.l. ári fluttu flugvélar
Flugfélags íslands um 4.800
lestir af vörum innanlands og
vélar beggja félaganna, Loft-
leiða og Flugfélags íslands,
fluttu 3.000 lestir til og frá
landinu. Eru þá ekki taldir með
flutningar Loftleiða milli
Bandaríkjanna og E.vrópu.
Hafa vöruflutningar íslenzku
flugfélaganna fjórfaldast á s.l.
tíu árum og er sú aukning hér-
umbil tvöföld aukning farþega-
flutninga á sama tíma. Enn eru
þó vöruflutningar í lofti aðeins
smávægilegt bi’ot af heildai’-
flutningum landsmanna, að
magni til, en sú þjónusta er
okkur þó mjög nauðsynleg og
munu íslenzku flugfélögin
stefna að því að auka hana vei’U-
lega á komandi árum. Ljóst er
þó, að ekki mun koma til stökk-
breytingar á þessu sviði fyrr en
FV 4 1975
45