Frjáls verslun - 01.04.1975, Qupperneq 50
Guftjón Teitsson, forstjóri Skipaútgerftar ríkisins
„IMý 4000 fermetra vörugeymsla
í Reykjavík bætir aðstöðunaM
„Yfirleitt hefur verið mjög gott samstarf milli Skipaútgerðarinnar
og heildverzlunarinnar. Samt sem áður er æskilegt að ræðta mörg
sameiginleg hagsmunamál, er staðið geta til bóta. Eg vil því hefja
mál mitt með'því að gera grein fyrir í hverju sé helzt áfátt hjá því
fyrirtæki, sem ég stend fyrir. Það er aðstaða fyrirtækisins í
Reykjavík,“ sagði Guðjón Teitsson, forstj. Skipaútgerðar ríkisins-
Aðstaða í Reykjavík stendur
þó til bóta, því að búið er að
teikna hús fyrir starfsemi
Skipaútgerðarinnar, en það
mun koma á uppfyliingu vest-
an Grófarbryggju. Verður það
myndarlegt hús, upp á 4000
fermetra, og aðallega hugsað
sem vöruskemma. Þegar hún
verður fullgerð vonast ég til að
þægilegra verði um afgreiðslu
á vörum og hætta á skemmdum
minnki verulega frá því sem
nú er, þegar vörur verða að
standa úti á hafnahbakka vegna
plássleysis í skemmunum.
Þó tel ég mest um vert, að
tafir hjá bílum viðskiptamann-
anna megi minnka. Eins og nú
er koma bílar viðskiptamanna
inn á ökuleiðir út- og uppskip-
unartækjanna, sem fara á milli
skipanna og geymsluhúsanna,
og hlýzt af þessu mikið umferð-
aröngþveiti, sem er fráfælandi
fyrir viðskiptamennina og veld-
ur okkur sjálfum töfum við af-
greiðslu skipanna.
NÝI SKIPAKOSTURINN
Mér þykir rétt að gera hér
grein fyrir þvi, hvað fyrir okk-
ur vakti, þegar breytt var um
skipakost útgerðarinnar. Eins
og þið vitið voru byggð tvö ný
strandferðaskip á Akureyri til
hringferða í kringum landið,
aðallega vöruflutningaskip, þö
að nokkrir möguleikar séu líka
á farþegaflutningum. Þegar
skipin voru hönnuð, vissum við
að erlendis var mest í tízku að
aka með vörur af hafnarbakka
beint um borð í skipin. Hér er
Guðjón Teitsson, forstjóri
Skipaútgerðar ríkisins.
ekki aðstaða fyrir þetta í höfn-
um, munur mikill á flóði og
fjöru auk þess sem veðurfar
hamlar gegn þessu. Skipin eru
hins vegar vel löguð fyrir ein-
ingaflutninga, í gámum og á
vörupöllum sem nú tíðkast í al-
þjóðlegum flutningum. Mið-
skips höfum við krana, sem
lyftir fimm tonnum og 20 tonna
lyftigeta er að framan. Frysti-
rúm er í tveimur lestum fyrir
u. þ. b. 250 rúmmetra, sem er
mjög þægilegt fyrir innanlands-
markaðinn, svo sem fyrir beitu-
flutninga og kjöt- og fiskflutn-
inga. Allt er þetta gagnlegt og
þægilegt. Skipin eru í gerð
sinni mjög heppileg sem strand-
ferðaskip, svo langt sem þau
ná.
55-58 HRINGFERÐIR Á
ÁRI.
Ýmsir eru óánægðir með
tíðni ferðanna, telja hana of
litla. Við erum með 55-58 hring-
ferðir þessara skipa á ári, sem
þýðir, að ekki er farið nema
hálfsmánaðarlega hvora leið á
báðum skipunum. Mönnum á
Vestfjörðum og Austfjörðum
t. d. hættir til að meta þá ferð-
ina, sem frá Reykjavík kemur,
miklu hærra verði heldur en
hina, er kemur að norðan. Þetta
hringferðafyrirkomulag er þó
að ýmsu leyti heppilegast fyrir
okkur, að mínum dómi. Hef ég
iðnaðinn í landinu þá einkan-
lega í huga. Markaðurinn fyrir
iðnfyrirtækin er nú ekki sér-
lega stór hér á landi. Við skul-
um taka sem dæmi, að iðnaður
rísi upp á Þingeyri eða Pá-
skrúðsfirði og hefði markað
fyrir allt landið. Ég vil, að þessi
fyrirtæki hafi möguleika til
sölu á öllum höfnum, sem
strandferðaskipin koma á, án
umhleðslu. Hægt er að hugsa
sér ókeypis umhleðslu að því er
snertir framhaldsflutning, og að
umhleðslukostnaður félli niður
t. d. á Akureyri.
Umhleðslan getur þó aldrei
komið í staðinn fyrir beinar
ferðir. Hún tefur og skapar
kostnað og skemmdahættu.
Létum við skipin snúa við á
Akureyri, og annað skipið færi
vestur um og hitt austur,
myndu þau lenda á sama tíma
í Reykjavík. Það yrði óhagstætt
varðandi nýtingu á mannafla
við starfsemina.
50
FV 4 1975