Frjáls verslun - 01.04.1975, Qupperneq 57
Selfyssingar eignast orkulindir:
IVIikið jarðhitasvæði fundið
í landi Laugardæla
— á borð við Reykjasvæðið í IVIosfellssveit
Nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós að jarðhitasvæðið í Laugardælalandi, skamnit austan við Selfoss,
getur gefið af sér álíka magn af heitu vatni og Reykjasvæðið í Mosfellssveit. Selfosshreppur keypti
virkjunarréttinn harna af Kaupfélagi Árnesinga um áramótin 1968—1969 á 14 milljónir króna.
Að sögn Óla Þ. Guðbjartsson-
ar oddvita Selfosshrepps, opnar
þetta geysilega möguleika fyrir
hreppsfélagið og er þegar í al-
varlegri athugun að leggja
leiðslur úr jarðhitasvæði Sel-
fosshrepps til Eyrarbakka og
Stokkseyrar til að leysa olíu-
kyndingar af hólmi á báðum
stöðum. Selfoss mun einnig
hafa nægilegt heitt vatn um ó-
fyrirsjáanlega framtíð og eins
og Óli komst að orði, væri hit-
ans vegna ekkert til fyrirstöðu
að reisa heila höfuðborg aust-
anfjalls.
FJÖLBREYTT ATVINNULÍF
Selfoss er héraðsmiðstöð og
við uppbyggingu staðarins er
stefnt að því að hann þjóni sem
best miðstöðvarhlutverkinu.
Þar eru atvinnumöguleikar fjöl-
breyttari en víðast á stöðum af
svipaðri stærð og alls ekki hægt
að tala um einhæfni í atvinnu-
lífinu. í fyrra greiddu 43 aðilar
aðstöðugjöld þar, auk 79 ein-
staklinga, en þessar tölur gefa
nokkra vísbendingu um fjöl-
breytta starfsemi á staðnum.
Fyrsti vísir að þorpi fór að
myndast þarna upp úr árinu
1929, að Mjólkurbú Flóamanna
reisti mjólkurstöð skammt frá
Ölfusárbrú, sem byggð var
1891. -Skömmu síðar var þar
stofnað Kaupfélag Árnesinga,
en það var ekki fyrr en á styr-
jaldarárunum síðari, að verú-
leg aukning varð á íbúatöiunni
í byggðinni við Ölfusárbrú.
Flykktist fólk þá til bæjanna
við Faxaflóa, en það margfald-
aði mjólkurþörfina þar og
mjólkuriðnaðurinn við Ölfusá
dafnaði. Svo var það 1947, að
Selfosshreppur var stofnaður
úr spildum þriggja næstu
hreppa.
ÍBÚAR 2822 I DES. SL.
Þótt staðurinn sé einhver sá
yngsti á landinu voru íbúarnir
orðnir 2822 í des. sl. og hefur
enn fjölgað. Fjölgun á Selfossi
í fyrra var um 7%, en lands-
meðaltalsfjölgunin var þá tæpt
hálft annað prósent. Taldi Óli
hina fjölbreyttu atvinnumögu-
leika eiga þar mikinn þátt að,
Eitt fyrsta fjölbýlishúsið á Selfossi nývígt. Óli telur, að innan ör-
fárra ára verði hreppsfélagið komið í vandræði með landsvæði
undir nýjar byggingar.
FV 4 1975
57