Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 67
vristarverur, sem aðkomu-
íþróttafólk getur búið í við
heimsóknir. Um þessar mundii'
er unnið að kappi við frágang
og mikill áhugi fyrir því meðal
íþróttafólks. Magnús vildi sér-
staklega nefna framlag ÍA
í þessu sambandi, en nú vinna
skipulagðir gjálfboðaliðaflokk-
ar ÍA-manna að því að einangra
loft hússins, en það hefði ann-
ars kostað um eina og hálfa
milljón króna. Unnið verður
við húsið fyrir 34 miljónir í ár.
Nýlokið er stórri viðbygg-
ingu við gagnfraeðaskólann og
er hann nú einn af fáum á
landinu einsetinn. í því húsi fer
fram mikil félagsstarfsemi,
bæði á vegum skólans og Æsku-
lýðsráðs Akraness. Neðri hæð
er ekki fulllokið. Barnaskólinn
er að verða of lítill og verður
væntanlega ráðist í byggingu
nýs barnaskóla í nýju hverfi
innan tíðar.
SJÚKRAHÚSIÐ STÆKKAÐ
Við sjúkrahúsifj verður unn-
ið fyrir um 50 milljónir króna
í ár. Þar er verið að fullgera
nýtt eldhús og unnið að gerð
nýrrar lyflækingadeildar, þar
sem verða um 30 legurúm.
Verður því væntanlega lokið
snemma á næsta ári og þá
verða um 100 legurúm í sjúkra-
húsinu.
Vegna þess að á næstunni
kann að verða mikiði jarðrask í
bænum vegna hugsanlegra hita-
veituframkvæmda, er ekki lagt
mikið í varanlega gatnagerð að
sinni. í ár eru þó lagðar þrjár
nýjar götur í ný bygginga-
hverfi.
NÝ BRYGGJA í SMÍÐUM
Nú er verið að byggja nýja
bryggju í höfninni, sem mun
auka viðlegupláss verulega.
Öðrummegin við bryggjuna
mun Akraborgin fá aðstöðu
þannig að hægt verður að aka
bílum beint um borð í hana,
eins og hún er útbúin fyrir.
Unnið verður að þessari fram-
kvæmd fyrir um 50 milljónir í
ár. Magnús sagði, að Akraborg-
in væri stór þáttur í góðum
samgöngum við Reykjavík,
enda fer skipið þrjár ferðir á
dag milli staðanna. Hann sagði
Unnið að
gatnagerð
í nýju
hverfi. Þar
eiga að rísa
fjölbýlis-
hús.
að skipið hefði reynst afbragðs-
sjóskip í öllum veðrum og væri
hinn þarfasti hlutur fyrir stað-
inn. Annars koma sérleyfisbílai'
einnig við á Akranesi og land-
leiðin til Reykjavíkur verður
mjög sjaldan ófær.
DVALARHEIMILI
ALDRAÐRA KOMIÐ VEL
Á VEG
Unnið er við byggingu dval-
arheimilis aldraðra, Höfða, en
framkvæmdir hófust árið ’72.
í fyrsta áfanga verða 36 íbúðir,
bæði fyrir einstaklinga og hjón.
Ráðgert er að heimilið verði
ekki hjúkrunarheimili, heldur
fremur fyrir fólk sem getur séð
um sig sjálft, en þó verður
þar vakt allan sólarhringinn og
sameiginlegt mötuneyti fyrir
vistmenn. Magnús sagði að mik-
il áhersla væri lögð á að koma
þessu húsi sem fyrst í notkun
og verðiur það fokhelt í sumar.
SJÁVARÚTVEGUR ER
AÐALATVINNUGREININ
Aðalatvinnugrednar á Akra-
nesi eru sjávarútvegur og iðn-
aður í vaxandi mæli. 16 stærri
bátar eru gerðir þaðan út, þrír
togarar ag talsverð trilluútgerð
er einnig. Trillurnar veiða mik-
ið af grásleppu og á síðasta ári
voru útflutningsverðmæti grá-
sleppuhrogna frá Akranesi 25
til 30 milljónir króna. Þau eru
fullunnin á Akranesi. Einum
þriggja togaranna var nýlega
lagt og er hann til sölu. Það er
togarinn Ver, nýr 700 lesta
pólskur togari. Útgerðarfélagið
Krossvík á hann ásamt öðrum
minni skuttogara. Báðir togar-
arnir hafa aflað vel, en þrátt
fyrir það reyndist ekki rekstr-
argrundvöllur fyrir stóra togar-
ann og hyggst útgerðarfélag-
ið kaupa einn eða jafnvel tvo
litla skuttogara fyrir andvirði
Vers. Ef ekki rætist úr þessu
máli, hefur það alvarleg áhrif
á atvinnulíf staðarins. Þriðji
togarinn, Víkingur, er síðutog-
ari, sem lengi hefur verið gerð-
ur út frá Akranesi. Margskonar
iðnaður er á Akranesi og má
nefna tvö stór fyrirtæki, skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts
og Sementsverksmiðju ríkis-
Nýja
íþrótta-
húsið verð-
ur nothæft
fyrir
landsmót
UMFÍ á
Akranesi í
sumar
. , | |g 1 .. .
r" 1 1 W: ■' J
FV 4 1975
67