Frjáls verslun - 01.04.1975, Blaðsíða 80
Fyririaeki, framleiðsla
lllerk tímamót:
Tuttugu ár síðan Loftleiðir
hófu ferðir til Luxemborgar
Hafa á þessu ári flutt 2 milljónir farþecja á flugleióinni
síðan ferðirnar hófust
Það er ekki Iaust við að íslendingurinn verði svalítið ánægður með sig, 'þar sem hann stendur úti á
svölum flugstöðvarinnar í Luxemborg á sólbjörtum og hlýjum vordeginum til þess að taka á móti
flugvél að heiman. Gljáandi stór'þotan með íslenzku fánalitunum á háreistu stélinu er að renna i
hlaðið með viðeigandi hreyflagný. Hundruð manna, af ýmsu þjóðerni, standa þarna allt í kring og
mæna hugfangnir á loftfariö, sem nú hefur numiðstaðar.
Farþegarnir ganga frá borði,
á þriðja hundrað talsins, flestir
komnir vestan frá Ameriku.
Þeir gera yfirleitt stuttan stanz
í stórhertogadæminu, en þeys-
ast svo áfram með öðrum flug-
vélum, járnbrautarlestum eða
bílum, tvístrast um alla Evrópu.
Þetta er daglegur viðburður i
Luxemborg, reyndar má segja
að þessi litla saga gerist þar
tvisvar á dag, næstum allt árið
um kring. Þetta er merkur
kapítuli liðandi stundar í enn
merkilegri sögu, sem nú er orð-
in tuttugu ára gömul.
Þetta er
Skymaster-
flugvélin
„Edda“,
Ieigu-
flugvél
Loftleiða
sem fór
fyrstu
ferðina
til
Luxem-
borgar í
maí 1955.
0 „Luxemborg
er
lítið land“
Það eru sem sagt liðin tutt-
ugu ár síðan Loftleiðir sendu
fyrstu Skymaster-flugvélina frá
Reykjavík til Luxemborgar í
áætlunarflug. Gerðist það hinn
21. maí 1955 er „Edda“, sem
félagið hafði þá á leigu frá
Braathens-flugfélaginu norska,
flutti íslenzka embættismenn
og blaðamenn ásamt öðrum far-
þegum inn í hjarta Evrópu, með
áningu í Gautaborg og Ham-
borg. Vafalaust hafa gestirnir
verið búnir að draga fram Evr-
ópukortið kvöldið áður til að
fá svolitla þekkingu á málun-
um, því að í þá daga, eins og
reyndar enn þann dag í dag,
höfðu menn á íslandi fremur
óljósar hugmyndir um Luxem-
borg, þetta smáríki, sem liggur
eins og milli steins og sleggju
á landamærum Þýzkalands,
Frakklands og Belgíu.
Aftan í frétt, sem Morgun-
blaðið birti þennan dag um á-
ætlunarflugið til Luxemborgar,
var hnýtt svohljóðandi landa-
fræðilexíu, stuttri og laggóðri
við alþýðu hæfi: „Luxemborg
er lítiði land, aðeins einn fertug-
asti hluti íslands að stærð, en
íbúarnir tvisvar sinnum fleiri
en hér heima. Mikil velmegun
alls almennings er í Luxem-
borg, landið er mjög auðugt að
járni og er járniðnaður aðalat-
vinnuvegur landsbúa. Þetta
litla riki í hjarta Vestur-Evrópu
á að baki sér mjög merka sögu
og munu margir íslendingar
80
FV 4 1975