Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 12

Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 12
4 Tölvunotkun á Islandi: Tölvur senn um borð í skipum og í frystihúsunum? íslenzk fyrirtæki jafnfætis erlendum í tölvutækni eftir 3 — 4 ár Notkun tölva er orðin útbreidd hér á landi og ínargar greinar atvinnulífsins hata tileinkað sér tölvutækni. Þessar „gáfuðu“ vélar leysa á örskammri stundu flókna útreikninga, sjá um bókhald, stjórna og skipuleggja ýmis verkefni, sem hefðu ella valdið manninum miklum heila- brotum og tekið hann langan tíma að vinna. Tölvur eru farnar að seilast inn á mörg starfs- svið mannsins og hafa þær m. a. verið þróaðar upp í að skynja mannlegt mál, þær geta teflt, samið tónsmíðar og fleira og fleira. Úr reikni- stofu Háskólans, sem þjón- ar Háskól- anum og öðrum með tölvu- vinnslu. Það gildir um tölvur eins og marga þætti tæknilegra framfara, að það þarf vissa kunnáttu og þjálfun til að geta hagnýtt þær svo sem best verður á kosið. Með aukinni útbreiðslu og almenn- ari kunnáttu, sem smátt og smátt kemur, er það vafalaust, að íslendingar nái betri og betri tökum á þessari grein. Leggja ber áherslu á að tölv- ur með sjálfvirka gagnavinnslu séu ekki settar undir þann sama 'hatt og alls konar vasa- og borðreiknivélar „calculat- ors“, sem í munni almennings hafa fengið tölvunafn. Skil hér á milli verða að vísu ekki dregin hárnákvæmt, þar seil- ist hvor flokkurinn um sig stundum alllangt inn á svið hins. TÖLVUR OG ATVINNULÍFIÐ. Frá því að sjálfvirk gagna- vinnsla hófst hér á landi hef- ur hið opinbera verið stærsti tölviunotandinn.Hér er þó í raun um að ræða margvíslega þætti stjórnsýslu og þjónustu á vegum ríkis- bæjar- og sveitarfélaga. Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar hafa stærstu tölvusamstæðuna og er hún notuð við ýmis verkefni fyrir ríkis- og borgarstofnanir og ýmsa aðra aðila. Af bæjar- og sveitarfélögum hefur Reykjavíkurborg mest notað tölvutæknina, en í seinni tíð eru önnur bæjar- og sveitarfé- lög að komast í gang. Þess má geta að gert hefur verið staðl- að forritakerfi fyrir sveitarfé- lög til að vinna gjaldendabók- hald. Var það tekið í notkun um síðustu áramót á nokkrum stöðum og mun auðvelda alla vinnu við innheimtu og skrán- ingu útsvara og fasteigna- gjalda. Bankar eru trúlega sá at- vinnurekstur, þar sem tölvu- notkun er algengust miðað við fjölda stofnana. Reiknisstofa bankanna hefur stóra tölvu, sem þjónar öllum bönkum og einnig eru þar vélar, sem lesa og raða ávísunum. Nokkrir bankar hafa yfir að ráða eigin tölvum og eru það Landsbank- inn, Iðnaðarbankinn, Verzlun- arbankinn og Sparisjóður Keflavíkur. Ýmis önnur fyrirtæki nota tölvur að marki og má þar m. a. nefna Flugleiðir hf., Sam- vinnuhreyfinguna, fyrirtæki á 12 FV 3 1976

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.