Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Síða 14

Frjáls verslun - 01.03.1976, Síða 14
gæti verkefnið farið áfram í tölvunetinu, ef tölva Háskólans nægði ekki til lausnar verk- efninu gæti það farið til Skýrsiuvéla eða um gervihnött til tölva t. d. við háskóla er- lendis og skólarnir þannig unn- ið verkefni sín á milli. Slíkt er að vísu ekki fyrir hendi enn, en raunin gæti orðið þessi í framtíðinni. Nú er í vændum að stofna Reiknistofnun Háskólans, sem á að reka sem þjónustustofnun við Háskólann, stofnanir hans og ýmsa aðra aðila. FJARVINNSLA. Fjarvinnsla hefur verið not- uð ihér á landi um nokkurra ára skeið af ýmsum aðilum og var Borgarspítalinn í Reykja- vík fyrstur til að nýta sér þessa tækni. Borgarspitalinn fékk spjaldalesara og prentara sem eru tengd við tölvu Skýrsluvéla með símalínu. Nú hafa fleiri fyrirtæki og stofn- anir og tekið upp fjarvinnslu m. a. Háskólinn til tengingar við tölvur Skýrsluvéla ríkis- ins, Reykjavíkurborg og KEA á Akureyri, sem hefur fjar- vinnslu við tölvu Sambandsins í Reykjavík. Flugleiðir hf. hafa tekið upp nýstárlega fjarvinnslu við Atl- anta í Bandaríkjunum. Skráð- ar eru inn á tölvu hérlendis bókanir í flugvélar. Tölvan sendir síðan upplýsingarnar til tölvunnar í Atlanta, sem geym- ir þær, þangað til Flugleiðir þurfa á þeim að halda. Fjarvinnsla fer í grundvall- aratriðum þannig fram, að tveir aðilar oftast tvær vélar eru tengdar saman með síma- línu og geta þá „talað“ saman. Telex er gott dæmi um hæg- genga fjarvinnslu. Má segja að í þessa samlíkingu vanti „vinnslu“ hlutann í hugtakið. Það þýðir að frumhugmyndin gengur út frá að annar aðilinn að fjarvinnslunni sé tölva, sem hinn aðilinn geti sent vinnslu- gögn gegnum símann, fengið þau meðhöndluð í tölvunni og meðtekið niðurstöður aftur gegnum símann, prentaðar á blað, sýndar á sjónvarpi eða skráðar á eitthvert véltækt form. Það er ýmist að fjarvinnsla fari fram gegnum venjulegan talsíma eða leigðar línur, sem ekki eru þá notaðar til annars. í sumum löndum fást leigðar línur með sérstökum eiginleik- um til gagnsendinga, og fer það að nokkru eftir því, hver hraði gagnsendingarinnar á að vera, hvort þörf er fyrir slíkt. Hér hafa gagnsendingar ver- ið reyndar til helstu símstöðva á landinu og til útlanda, og línur víðast reynst fullnægj- andi fyrir þá sendingarhraða, sem algengastir eru. Á milli símalínu og enda- stöðvar þarf tengibúnað, Mo- dem, sem breytir merkjum sendum frá endastöð yfir í hljóðmerki hæf til sendingar í síma, og breytir svo aftur hina leiðina úr símamerkjum yfir í tölvutæk merki, þegar kemur að hinum endanum. Modem fylgja oft með síma- línum frá Pósti og síma, en fást líka hjá mörgum tölvu- framleiðendum. Nú hefur verið tekin upp ný tækni í fjarvinnslu hér á landi en það er svokölluð „on line“ fjarvinnsla. Notandinn er í stöðugu sambandi við tölvu, sem svarar um leið og vinnur úr öllum verkefnum strax. Kúlulegusalan og Krist- inn Guðnason hafa yfir slikum „on line“ fjarvinnslubúnaði að ráða. STOFN- OG REKSTURS- KOSTNAÐUR. Hér á landi þarf að greiða 7% toll og 20% söluskatt af tölvubúnaði, sem uppfyllir til- tekna skilmála skv. tollskrá og vörugjaldi. Verð til tolls af leiguvélum miðast við 30 mán- aða leigugjald. Þetta að við- bættum flutningskostnaði er stofnkostnaður fyrir vélbúnað. Auk þess kemur til í mismun- andi mæli eftir stærð tölvunn- ar, kostnaður við innréttingu húsnæðis, þjálfun starfsfólks, skipulagningu verkefna, breyt- ingar úr fyrra kerfi yfir í nýtt, ef um slíkt er að ræða og for- ritun. Ógerlegt er að nefna ein- hverjar tölur í þessu sambandi. Hið sama gildir um rekst- urskostnað. Engin einföld for- múla er til um það, hvenær tölvunotkun borgi sig. Slíkt verður að meta hverju sinni, að undangenginni athugun og skipulagsvinnu. Getur þá enn verið álitamál, hvort afla skuli eigin tölvu, stórrar eða lítillar, hvort kaupa skuli aðgang að tölvu annars notanda eða þjónustumiðstöðvar, annað- hvort gegnum fjarvinnslu með eigin endastöð, eða að gögn séu flutt til úrvinnslu. STÓRAR TÖLVUR VÍKJA FYRIR LITLUM. Þróun virðist vera sú, að fyrirtæki og stofnanir, sem að- gang hafa haft sameiginlega að stórum tölvum komi sér frekar upp litlum. Þróunin stefnir í þá átt, að vélar margfaldist af afköstum á fáum árum á meðan bæði verð og fyrirferð minnkar að sama skapi. Nokkuð af þeirri afkastaaukningu sem vinnst er svo að jafnaði notað til að auðvelda meðferð vélanna, gera þær sjálfvirkari og létta vinnuálagi af notendum að því er snertir forritun og mótun. Síðustu 5 árin hefur vinnslu- hraði í minni venjulegra tölva aukist allt að því þrjátíu falt. Mikið er farið að nota tölv- ur í læknavísindunum og við alls konar rannsóknir á sviði heilbrigðismál. Tölvurnar eru orðnar ódýrari og þess vegna er læknavísindum gert kleift að notfæra sér tölvutæknina. Rauntímavinnsla („real-time processing) og bein vinnsla (on line), sem áður hefur ver- ið minnst á eru að byrja að ryðja sér til rúms hér á landi. Þessi tækni er orðin mjög al- menn erlendis t. d. á skattstof- um, í börakum og hjá bifreiða- eftirlitum. íslenski markaðurinn er ennþá óreyndur, en hann fet- ar sig með miklum hraða inn í þróunina og eftir 3-4 ár mun íslenski markaðurinn standa jafnfætis öðrum þjóðum hvað tölvuþróun snertir. 14 FV 3 1976
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.