Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 22

Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 22
miklu hærri en þessar 162 milljónir punda auk þeirrar ó- umræðilegu eymdar, sem kom- ið hefði yfir fólkið. Auk þess hefði atvinnuleysistalan í Bret- landi hækkað verulega, eni um áramótin voru um 5,2% af vinnufærum konum og körlum atvinnulaus. Wilson benti á að með þessari aðstoð, sérfræði- þekkingu og valdi stórfyrirtæk- is sem Chrysler mætti telja víst að hægt yrði að reisa fyrirtæk- ið við oig gera það arðbært á ný. Á það var einnig bent, að fyrirtækið hefur nýverið fengið tugmilljónapunda pöntun frá íran. # Læti í þinginu Mikil læti urðu í þinginu, er þessi ákvörðun stjórnarinnar var tilkynnt og sakaði stjórn- arandstaðan Wilson um heig- ulshátt fyrir að hafa látið und- an kúgun Chrysler og skozkra þjóðernissinna, sem höfðu mjög látið að sér kveða til stuðnings Chrysler vegna ótta við að verksmiðjunni í Linwood yrði lokað. Ýmsir af þingmönnum Verkamannaflokksins sjálfs gagnrýndu þessa ákvörðun harðlega. Þingmenn úr vinstri armi flokksins sögðu að stjórn- in hefði átt að taka hlutabréf í fyrirtækinu upp í aðstoðina, menn úr hægri arminum voru reiðir yfir því að svo miklu fjármagni skyldi veitt úr ríkis- sjóði á erfiðum tímum, á sama tíma og stjórnin væri að reyna að sýna hörku í að rétta efna- haginn við. Aðrir sýndu meiri skilning, en töldu þó að stjórn- in hefði getað haldið lengur út áður en hún lét undan. Eftir að umræðum var lokið var gengið til atkvæða um málið og þá kom í ljós hversu sterkur Wil- son var og raunar hve sterkur Verkamannaflokkurinn er, því að nægilegt fylgi fékkst til að keyra málið í gegn. Enn ekki eru öll kurl þó komin til grafar, því að í áætl- uninni um endurreisn fyrirtæk- isins er gert ráð fyrir að 8000 manns verði sagt upp störfum og standa nú yfir samningar milli verkalýðsfélaganna og Chrysler um að reyna að lækka þá tölu. A VÍÐ OG DREIF ASEA, raftæknifyrirtækið sænska, hefur tilkynnt, að sala þess hafi aukizt um 14% í fyrra í 7.683 milljónir sænskra króna. Nettó- hagnað'ur af rekstri ASEA óx úr 80 milljónum króna í 298 millj- ónir. Stjóm fyrirtækisins mælti með því að hlutafé yrði aukið úr 787 milljónum í 984 milljónir króna með útgáfu jöfnunarlil'uta- bréfa. • • • NORSKI byggingaverktakinn Ingeriör F. Slemer A/S hefur gert samninga um byggingarframkvæmdir á Filabeinsströndinni í Vestur-Afríku að upphæð 90 miilljóndr n. kr. Samningurinn var gerður við opinbert byggingarfyrirtæki og nær til framkvæmda í miðborg höfuðstaðarins Abidjan, þar sem Selmer hefur þegar reist 4300 íbúðir samkvæmt fyrri samningum. • • • TIL NOREGS komu um 360 þúsund erlendir ferðamenn í fyrra frá löndum utan Norð'urlandanna. Var þetta 1% aukning frá fyrra ári. Samningar Norðurlandanna gera það að verkum, að ferða- menn frá Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og íslandi eru ekki taldir með. Bretar voru flestir meðal ferðamanna í Noregi eða 101 þús., næstir voru Þjóðverjar 72 þús. og Bandaríkjamenn 71 þús. • • • FALLANDI gengi pundsins er áberandi veikleikamerki efna- hagsmála Breta. Miðað við Bandaríkjadollar hefur pundið fallið verulega frá stríðslokum. Þá var það skráð á $6.50, $4 árið 1947, $2.43 fyrir ári en fór niður í $1.90 í marzmánuði. ÚRSMÍÐAR Svisslendinga eru taldar í nokkurri hættu. Sviss- nesku úrin, sem hafa verið ráðandi á heimsmarkaði eru nú á und- anhaldi fyrir ódýrum tölvuúrum, sem framleidd eru í Bandaríkj- unum. Salan á svissneskum úrum minnkaði um 22% í fyrra miðað við árið á undan. • • • VESTUR-Þjóðverjar kaupa síður en áður dýrar gerðir bifreiða og vilja nú fremur smábíla, bifhjól og notaða bíla. í fyrra óx framleiðsla minni bíla en hins venjulega Volkswagen í 123 þús. en var ekki nema 38 þús. 1973. Sala á bifhjólum og öðrum tví- hjóla vélknúnum farartækjum fór 18% fram úr framleiðslunni 1974. Aldrei hafa selzt fleiri notaðir bílar í V-Þýzkalandi en í fyrra, 4 milljón stykki. • • • VIÐSKIPTIN milli Japans og Kína munu væntanlega stór- aukast undir lok áratugarins að áliti sérfræðinga. Þeir bjartsýn- ustu fullyrða, að verzlunarviðskipti landanna aukizt 2 V2 sinnum fram til ársins 1980. Viðskipti Tokyo og Peking eru þegar í hröð- um vexti eftir að þau námu á bilinu 500—600 milljónum dollara árlega á síðari hluta sjöunda áratugarins. Þessi viðskipti námu 3,3 milljörðum dollara 1974 og u.þ.b. 4,3 milljörð'um í fyrra. 22 FV 3 1976

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.