Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Blaðsíða 24

Frjáls verslun - 01.03.1976, Blaðsíða 24
Grelnar og uiðlil Efnahagshorfur -eftir dr. Guðimund IVIagnússon, prófessor I»að er einkennandi fyrir þróun efnahagsmála á alþjóðavettvangi síðustu tvö árin, að samdráttur hefur átt sér stað samtímis í nær öllum löndum. í annan tíma hafa málin æxlast meira á misvíxl þannig að sterk eftirspurn á einum stað hefur bætt upp eða vegið að einhverj'u leyti á móti slakri eftirspum annars staðar. Atvinnuleysi hefur í vetur verið hið mesta í mörgum iðn- ríkjum frá stríðslokum og farið að meðaltali yfir 5%, eða í um 20 milljónir manna á atviranu- leysisskrá. Nýting afkastagetu hefur verið slök, eða 70—75%, og framleiðsia beinlínis dregist saman um nokkra hundraðs- hluta. Fylgifiskar þessarar þróunar hafa í mörgum löndum verið tiltölulega ör verðbólga og and- stæð þróun gjaldeyrismála. Hér skulu ekki raktar ástæður þessa, enda margrætt mál. Hins vegar mun leitast við að skýra hvers vegna efnahagsbati hafi látið standa á sér og hver sé líkleg framvinda mála á þessu ári. f Hver á að borga brúsann ? Afturkippurinn í efnahagslífi umheimsins hefur reynst ó- venju langvinnur. Efnahags- málin hafa lent í vítahring. Minni framleiðsla hefur leitt af sér minnkun alþjóðaverslunar, aukið atvinnuleysi og valdið öryggisleysi hjá einstaklingum og fyrirtækjum og gert ríkis- stjórnir ráðvilltar. Einstakling- ar hafa dregið saman seglin, minnkað eyðslu en lagt meira til hliðar. En fyrirtækin kæra sig ekki um að ráðast í nýjar fjárfestingar, þegar þau hafa umframafkastagetu og fram- leiða á birgðir. Nýfjármuna- myndun minnkar því, en spar- að fé liggur ónotað. Allt er þetta í samræmi við kennslu- bækur fyrir byrjendur í hag- fræði. En sumt er nýtt. Hefðu hag- fræðinemar verið spurðir að því á prófi fyrir tíu árum hvort hugsanlegt væri að í þjóðfélag- inu færi saman neikvæður hag- vöxtur, ör verðbólga, verulegt atvinnuleysi og þrálátur halli á viðskiptajöfnuði, mundu flestir þeirra hafa svarað því til, að þetta gæti einungis átt sér stað í vanþróuðu ríki. En eins og við vitum er þetta einmitt lýsing á ástandi efnahagsmála í sumum vestrænum iðnríkjum á þessari stundu. í slíkri stöðu verða hin hefð- bundnu meðöl í formi opin- berra mótvægisaðgerða tvíeggj- uð. Þess vegna hafa ríkisstjórn- ir haldið að sér höndum eða farið afar gætilega í að auka umsvif hins opinbera af ótta við enn meiri verðbólgu og enn meiri halla á fjárlögum en ella. í þessum efnum hljóta aðgerð- ir Bandaríkjamanna, Vestur- Þjóðverja og Japana að vera þyngstar á metunum. Engin þessara þjóða hefur viljað grípa til kraftmikilla mótvægisað- gerða vegna hættu á enn meiri verðbólgu heima fyrir. Stjórn- málaleg samstaða virðist hafa verið í þessum löndum fyrir því að þola því meira atvinnu- leysi. Þetta útilokar ekki að hvort tveggja fari saman, hækkandi verðlag og aukið at- vinnuleysi, heldur merkir að aukning verðbólgunnar verður minni en ella. # Rétt eða röng stef na ? Margir hagfræðingar hafa haldið því fram, að betra væri að fara ,,hina leiðina", þ.e. að örva eftirspurnina og viðhalda hagvexti á kostnað meiri verð- bólgu. Sé vandinn skilgreindur sem val milli þessara tveggja kosta, er gert ráð fyrir beinu sam- bandi milli þensluaðgerða og verðbólgu annars vegar, en samdráttaráhrifa og verðhjöðn- unar hins vegar. Svo virðist hins vegar sem hið síðara þurfi ekki að fylgja af hinu fyrra. Margt bendir til þess að enda 'þótt raunverulegt val sé fyrir hendi í sumum löndum verðbólgu og atvinnuleysis, þá slái samdráttaraðferðin ekki jafnmikið á verðbólgu og gert hefur verið ráð fyrir. Þetta er m.a. sameiginleg niðurstaða fjögurra þekktra bandarískra hagfræðinga sem athugað hafa hver í sínu lagi þverstæðuna sem aukið atvinnuleysi og vax- andi verðbólag mynda. Ástæð- urnar telja þeir einkum felast í hegðun verkalýðsfélaga, sam- 24 FV 3 1976
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.