Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 25
keppni um vinnuaflið og verð-
myndun á markaði þar sem fyr-
irtækin hafa einkasölu eða fá-
keppnisaðstöðu.
Frá því á síðari hluta fyrra
árs má greina nokkur bata-
merki í efnahagslífi vestrænna
ríkja og má skipta löndunum i
grófum dráttum í fjóra flokka
eftir stöðu þeirra í hagsveifl-
unni.
0 Bandaríkin:
Bandaríkin hafa náð sér
einna best á strik, en ýmislegt
bendir til þess, að hvatinn valdi
ekki jafnmiklum straumhvörf-
um og vonast var til í lok fyrra
árs. Þetta á einkum rót sína að
rekja til mikillar varfærni í
peningamálum og er líklegt að
sama aðhalds gæti í þeim mál-
um enn um stund, ef dæma má
af orðum forsvarsmanna pen-
ingamála þar í landi.
Japan virðist svipað á vegi
statt og Bandaríkin.
0 Efnahagsbanda-
lagið
Innan Efnahagsbandalagsins
eru Bretland og Ítalía sér á
báti. Staða efnahagsmála í þess-
um löndum var afar veik þegar
samdrátturinn hófst. Hið sama
gilti reyndar um Danmörku, en
Danir hafa tekið sig á, en slæg-
leg frammistaða Breta endur-
speglast þessa dagana í gengis-
skráningu pundsins. Enginn
veit hver framvinda mála verð-
ur á Ítalíu, en sem kunnugt er
eru þeir með skuldseigustu
þjóðum Evrópu um þessar
mundir.
Að því er varðar önnur lönd
Efnahagsbandalagsins en ítalíu
og Bretland virðast þau hafa
siglt upp úr öldudalnum.
í EFTA-ríkjunum, svo sem
Austurríki, Finnlandi, Noregi,
Sviss og Svíþjóð hefur batinn
látið á sér s>tanda, en Norðmenn
hafa allt fram á siðustu mánuði
haft nokkra sérstöðu, þar sem
framleiðsla hefur aukist þar
eðlilega og atvinna verið nóg.
Þessi lönd mega ekki síður en
Islendingar búast við öllu
min.ni framleiðsluaukningu á
þessu ári en vonir stóðu til fyr-
ir hálfu ári eða svo. Greinilegt
er, að afborganir og vextir af
eyðslulánum munu setja svip
sinn á aðgerðir í efnahagsmál-
um í flestum þessara landa
næstu árin. Að því leyti eru
viðhorfin ekki frábrugðin því
sem gerist hér á landi. En við
eigum þar met í stærðargráðu á
mörgum sviðum.
SUMARHÓTELIÐ ÓLAFSFIRÐI
Ferðamannaþjónusta allt sumarið.
Gisting, 1, 2ja og 3ja manna herbergi.
Matur, kaffi, smurt brauð o. fl.
SÍMAR 96-62315 OG 96-62384, ÓLAFSFIRÐI.
FRAMLEIÐUM SKINNA- OG LEÐUR-
FATNAÐ.
• HOFUR
• JAKKA
• LÚFFUR
í öllum stærSum og gerðum.
ÝLIR SF. Saumastofa
SKÍÐABRAUT 3 — DALVÍK — SÍMI 96-61405
FV 3 1976
25