Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Síða 37

Frjáls verslun - 01.03.1976, Síða 37
getur hún hafa tekið meiri framförum síðan þá en við??? # Allt dregiö í meðalmennskuna Það er einn af ósiðum þjóð- arinnar að draga allt í meðal- mennskuna, að ofan niður og að neðan upp. Ég held engan veginn, að það sé ein af ástæð- unum fyrir skrifum Leós um menntamennina. Hann er jú sjálfur einn af þeim, einn af fræðingunum. Sem slík er gagn- rýni hans réttmæt. Ekki dettur mér til hugar að fara að taka upp hanskann fyr- ir arkitekta í málum, sem eru þeirri stétt til vanvirðu. Enda hef ég gagnrýnt kollega mína opinberlega við litlar vinsældir sumra þeirra. En öll fjölmiðlun hefur sín áhrif til hins betra eða verra, svo að ekki sakar að líta á málið frá fleiri en einni hlið. Eins og Leó segir er Breið- holtið arkitektum ekki til mik- ils sóma, eða réttara sa-gt sá þáttur þess, sem þeir bera á- byrgð á. Það er öllum vonandi ljó-st, að útlit og skipulag Breið- holtsins er ekki einfarið verk arkitekta iheldur einnig stjórn- málamanna, tækndfræðinga, verkfræðinga, byggingameist- ara, embættismanna borgar- innar og síðast en ekki síst borgaranna, en verðbólguupp- eldi þeirra ,,neyðir“ þá til þess að byggja yfir sig í stórum hóp- um árlega ella tapa þeir fjár- munum. Þetta er ákaflega margslungið mál eins og allt skipulag, ákvörðunartaka um það, framkvæmd og fjármögn- un þess vitaskuld er. Þ-etta er of stórt mál til þess að sortéra arkitekta úr hópnum og kannski stjórnmálamennina eins og Leó gerir. • Blokkir viö ÁlftamýrÍ „hugmyndaleysr' Eina ákveðna dæmið, sem hann nefnir í þessari grein frá Breiðholtinu er ljót blokkar- bygging, „eitt af ljótustu mann- virkjum á norðurhveli jarðar“. í orðum hans felst, að arkitekt hafi teiknað þetta hús svo að þá koma fimm eða sex blokkir þar efra til greina. Allar hinar hafa aðrir en arkitektar teiknað. Nú er smekkur alltaf umdeilanleg- ur en- ekki finnst mér allar þessar fimm til sex fallegar. Að mínu mati má þó finna ljót- ari blokk en þessar í Breiðholt- inu. — Ég get glatt Leó með því að íslenzkar „mennta- mannaafurðir" á sviði skipu- lags eru þegar komnar í banda- ríska kennslubók, sem dæmi um það hvernig ekki á að fara að. Þetta dæmi eru blokkirnar við Álftamýri. Fyrir neðan mynd af þeim er talað um hugmyndaleysi. Álit mitt á Breiðholtinu, sem ég von-a, að menn te-lji ekki um of litað þeirri atvinnu, sem ég alla jafnan stunda, er þetta: Skipulagning Breiðholtsskipu- lagsins eru að mínu viti þau hrapallegustu upplýsingamiðl- unarmistök, sem orðið hafa hér á landi í seinni tíð og er þó nógu af að taka. Þeir aðilar sem lögðu hönd á plóginn -gerðu áreiðanlega sitt besta en það e-r ekki nógu gott. Nú skildi eng- inn halda, að hér sé verið að afsaka Breiðholtið, þvert á móti. Skortur á upplýsingum, nýjustu upplýsingum nú á tím- um tækninnar og hraðans er ófyrirgefanlegur. Einhver vís maður sagði sem svo, að slíkur skortur gæti komið heilum þjóðum fyrir kattarnef á stuttu tímabili og lengd þess tímabils styttist hraðfara. # Skortur á upplýsinffamiðlun Þetta er annar landlægur þjóðarósiður einkum hjá þeim, sem með völdin og fjármálin fara. Áhugaleysi þeirra á greið- ari upplýsimgamiðlun á öllum sviðum er ekki aðeins til há- borinnar skammar heldur veld- ur það gífurlegri sóun á fjár- munum þjóðarinnar. Fjármun- um, sem þeir telja sig sennilega vera að spara með því að strika yfir liðinn: upplýsingamiðlun. Ég vona, að ég sé ekki að ljóstra upp neinu leyndarmáli, þegar ég nefni það, að hér á landi mun aðeins vera einn maður, sem gagngert vinnur að því að safna alhliða upplýsing- um. Öll hans vinna í nokkur ár mun t.d. haf-a greiðst af því, að hann fann eitt gataspjald hjá viðskiptastöðum sínum er- lendis. Á sama tíma og við ís- lendingar eigum einn alhliða upp-lýsingasafnara eiga öll menningarlönd upplýsinga- miðlunarstofnanir og flestar þeirra starfrækja eigin hug- myndabanka. . . . . En við erum svo fáir og smáir? Ef til vill kennir Breið- holtið okkur hve það er dýrt að hafa ekki efni á því að fylgj- ast með. Ég veit ekki hvort það er rétt skilið hjá mér í lok greinar Leós, þar sem hann fjallar um skýrslur og skýrslu'gerðarmenn, að þar sé enn komin fram þessi landlæga andúð á upplýsinga- söfnun. En ég vil benda honum á til vonar og vara að athuga það dálítið nániar, hvort hugs- anlega gæti Breiðholtið hafa litið öðruvísi út, hefðu verið gerðir um það „hnausþykkir doðrantar" og meiri fjármunum eytt í undirbúning áður en haf- ist var handa. Eða er íslenska aðferðin betri, að rjúka af stað af því hve allt er orðið dýrt og borga svo helmingi meira eftirá þegar öllu þarf að breyta? # Þakleki Leó fullyrðir að „þakleki hafi verið svo til óþekkt fyrir- brigði í áratugi“ áður en arki- tektar hófu starf sitt hér á landi. Mér er nær að halda að þeir, sem fyrir þann tíma gegndu störfum arkitekta, en nefndu starf sitt öðru nafni, hafi átt við samsvarandi þak- lekavandamál að stríða í 1100 ár hérlendis. Kjarni þessa máls er vitaskuld sú að allar mennta- mannastéttir eiga sitt grínsögu- einkenni hjá þjóðinni. T.d. láta arkitektar þökin leka, verk- fræðingar pissa uppí vindinn, lækmar grafa misheppnuðu verkin, sáifræðingar eru sjúkl- ingar sjálf sín o.s.frv. Þetta er um leið eins konar viðurkenn- ing söguþjóðfélagsins á því, að þessir aðskotagemlingar, sem FV 3 1976 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.