Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 45

Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 45
Verzlunin Víðir í Starmýri, sein Sigurður og synir hans reka í félagsskap auk verzlunar- innar í Austurstræti 17. FV.: — Það rnunu áreiðan- lega flestir telja það unitals- vert framtak að ráðast í kaup á fyrirtæki eins og Silla og Valda í Austurstræti. Hvaða aðgang hafa kaupmcnn að stofnlána- sjóðum til að slíkt sé mögulegt? S.M.: — í fyrsta lagi hefði ekki hvarflað að mér að ráðast í þessi kaup, nema vegna þess að synir mínir báðir stai'fa mér við hlið og hafa gert á undan- förnum árum, enda eru þeir sú driffjöður, sem ég treysti mest á, og eru þeir eigendur fyrir- tækisins hvor um sig að jöfnu við mig. Matthías var í skóla í Danmörku og lærði sérstaklega verzlunarrekstur í tengsium við nám sitt. Hann er nú verzlun- arstjóri í Austurstrætinu. Eirík- ur er aftur á móti verzlunar- stjóri í Víði en segja má að við skiptum þannig með okkur verkum, að synirnir annast all- an daglegan rekstur, innkaup, verðlagningu og mannaráðn- ingar, en ég sé um bókhald og fjármál. Ég orða það þannig að ,nú sé maður farinn að sendast aftur. Verzlunarlánasjóður við Verzlunarbanka íslands hf. er eini sameiginlegi fjárfestingar- sjóður einkaverzlunarinnar, en með alltof takmörkuð fjárráð. Kaupmenn hafa einnig stofnað nokkra sérstofnlánasjóði til að leysa úr minniháttar viðfangs- efnum. Sjálfur nýt ég þess að Sigurður með somun sínum Matthíasi og Eiríki. vera búinn að starfa með eigin verzlun í 25 ár og hafa ávallt staðið í skilum. FV.: — Eiga smærri verzlan- ir í vök að verjast vegna sam- keppi markaðsverzlana? S.M.: — Ég veit ekki hvort rétt er að segja, að þær eigi beint í vök að verjast. Vissu- lega hefur verzlunin á seinni árum, hér eins og annars stað- ar, færzt yfir á færri og stærri einingar, en markaðir sem slík- ir eru engin patentlausn á verzlunarfyrirkomulagi. Þess vegna held ég að „kaupmaður- inn á horninu“ ef svo má orða það, hafi áfram sitt fulla gildi og gegni sínu ákveðna hlut- verki. Það er nú einu sinni svo, að fjöldi viðskiptavina leggur mikið upp úr þjónustu og per- sónulegum tengslum, sem fylgja smærri verzlunum, en fyrirfinnast ekki í svokölluðum mörkuðum. í þessu sambandi vil ég árétta, að ég tel ekki, að það eigi að vera vandalaust að reka verzlun. Þvert á móti eru vandamálin til að herða og stæla þann, sem rekur verzlun- ina, og því aðeins að verzlunar- reksturinn sé krefjandi og út- heimti vinnu og útsjónarsemi, verður hún neytandanum til þeirra hagsbóta og þæginda, sem hún á að vera. FV.: — Er ekki augljóst að verzlunarhættirnir eigi eftir að færast meira út í markaðs- formið eins og annars staðar hefur orðið? S.M.: — Markaðir eiga vissu- lega rétt á sér. En uppbygging þeirra og rekstur verður að vera þannig að eigendur þeirra sitji við sama borð og hinn al- menni kaupmaður. Þannig er það t.d. algerlega óviðunandi, að markaðir geti skotið upp kollinum t.d. í iðnaðarhverfum, sem eru byggð upp í allt öðrum tilgangi og fjármögnuð með allt öðrum og hagstæðari hætti en FV 3 1976 45

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.