Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 49

Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 49
austur í Vík í Mýrdal. Ástæðan fyrir því að við keyptum þetta fyrirtæki var sú, að við einka- framtaksmenn vildum ekki vera einangraðir hvað kjötvör- urnar snertir. FV.: — Sambúð kaupmanna og hcildsala hefur verið mcð ýmsu rnóti og virðist ganga nokkuð erfiðlega á köfl'um. Eru kaupmenn sæmilega ánægðir með viðskipti sín við heild- verzlunina eða er fyrirsjáan- Iegt að þessir Iiópar fjarlægist hvor annan? S.M.: — Mér er fyllilega Ijóst, að innflutningsverzlunin og heildsalar eiga við mörg vandamál að fást og hefur svo verið meira og minna svo lengi sem ég man eftir. Það er hins- vegar ekkert, sem réttlætir það, að þeir velti þeim vandamálum og erfiðleikum yfir á smásölu- verzlunina, en því miður hafa verið of mikil brögð að því. — Heildsala og smásala eru á sinn hátt tvær greinar á sama meiði og svo bezt tekst þeim að byggja upp sterka og hag- kværna vörudreifingu, að þeir viðurkenni hvorn annan í verki. FV.: — Hvað vilt þú ráð- leggja ungum mönnurn, sem hyg£Ía a verzlunarrekstur í dag? S.M.: — Það er ekki á mínu færi að gefa ráðleggingar í þess- um efnum. Hér er hver og einn fyrst og fremst sinnar eigin gæfu smiður. Hins vegar get ég undirstrikað það, miðað við mína eigin reynslu, að smásölu- verslunin er vinna og aftur vinna. Gæta verður þess vel að rugla ekki reitum í eigin fjár- málum og fjármálum fyrirtæk- isins. Jafnframt er kröfuharka til sjálfs sin, reglusemi og skilvísi gagnvart hinum mörgu viðskiptaaðilum, afgerandi þáttur í þessum efnum. Ég veit ekki hvort menn hafa tekið eftir því, að það er alger undantekning, ef fólk með langskólamenntun á sviði verzlunar og viðskipta, haslar sér völl í smásöluverzlun. Hver ástæðan er skal ég ekki fullyrða, en þetta út af fyrir sig er nokkurt. umhugsunarefni. • Skjalaskápar fyrirliggjandi með 2, 3 og 4 skúffum í A 4 og foliostærðum. • Peningaskápar • Spjaldskrárskápar í DIN og enskum stæröum EGILL GUTTORMSSON SUÐURLANDSBRAUT 4 - SÍMI 25155 FV 3 1976 49

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.