Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 61
Vík sf.
Prjónar ýmsar gerðir af
sokkum og nærfatnaði
Tvenn hjón á Dalvík reka þetta fyrirtæki
Hinn 1. mars sl. var stofnað nýtt fyrirtæki á Dalvík. Fyrirtækið heitir Vík sf. og kemur til með að
framleiða karlmannasokka, sportsokka, barnasokka og nærfatnað á börn. Þegar Frjáls versl'un
heimsótti Dalvík fyrir skömmu var þetta nýja fyrirtæki heimsótt. Þennan sama dag voru eigend-
umir að vinna að uppsetningu vélanna, sem frainleiða eiga sokkana og voru fyrstu prufurnar að
sjá dagsins Ijós.
Eigendur Víkur sf. við prjónavélina sem keypt var úr Grundar-
firðinum til að prjóna sokka á Dalvík.
Vík sf. er stofnað upp úr
öðru fyrirtæki, sem hét Prjóna-
stofa Maríu Jónsdóttur og fram-
leiddi prjónastofan eingömgu
prjónanærfatnað. Frjáls versl-
un hitt fyrir Maríu Jónsdóttur
og eiginmann hennar Guðmund
Jónsson og bað þau að segja
nánar frá þessu nýja fyrirtæki.
— Við vorum hérna tvenn
hjón sem tókum okkur saman
um þetta, sagði María, en hinir
eigendurnir eru Sigurgeir Ang-
antýsson og kona hans, Dóra
Þorsteinsdóttir. Við keyptum
sokkavélarnar frá Halldóri
Finnssyni á Grundarfirði, en
hann var með framleiðslu á
Mayor-sokkum. Hann hætti
þeirri framleiðslu fyrir 2<—3
árum og þá voru aðrir aðilar
að hugsa um að kaupa vélarn-
ar. Það varð þó ekki af því, svo
við kræktum í þær.
FYRSTU SOKKARNIR í
APRÍL
Að sögn þeirra Maríu og
Guðmundar vonast þau til að
geta sett fyrstu sokkana á
markaðinn í apríl. — Við eig-
um alveg eftir að vinna markað
fyrir sokkana, en salan á nær-
fatnaðinum gengur mjög vel og
við höfum ástæðu til að ætla
að nærfötin séu vinsæl, sögðu
Guðmundur og María. — Við
erum búin að setja okkur í sam-
band við dreifingaraðila í
Reykjavík og vonumst til að ná
samningum við hann um dreif-
ingu framleiðslunnar. Við telj-
um að það sé miklu betra en að
standa í þessu sjálf.
Guðmundur sagði að mikið
af efni hefði fylgt með í véla-
kaupunum, en þar er um að
ræða krep og acryl og ullar-
blöndu. — Við notum þetta
efni til að byrja með, sagði
hann, en síðan munum við
kaupa efni frá Steinvör hf. í
Reykjavík.
LÁNAFYRIRGREIÐSLA
Þau Guðmundur og María
sögðu að þeim hefði reynst það
miklu erfiðara og kostnaðar-
samara fyrirtæki að koma
þessu af stað en þau höfðu ætl-
að. — Við erum þó svo heppin
að hafa rnotið ágætis lánafyrir-
greiðslu hjá Sparisjóðnum
hérna og hjá Útvegsbankanum,
sagði Guðmundur. Einnig hvíla
gömul lán á vélunum frá
byggðasjóði og iðnlánasjóði og
vonumst við til að þau verði
látin fylgja vélunum áfram.
Eigendur nýja fyrirtækisins
voru bjartsýnir á að sokkafram-
leiðslan myndi ganga vel. —
Nú eigum við bara eftir að fá
gott vörumerki, sagði María, en
það mun Dóra Þorsteinsdóttir,
einn af eigendunum sjá um og
þá erum við fær í flestan sjó,
sagði María að lokum.
FV 3 1976
61