Frjáls verslun - 01.03.1976, Blaðsíða 65
Bílaverkstæði Ólafsfjarðar:
Útvegun varahluta
einn erfiðasti þáttur
í rekstrinum
— Snjóleysið í vetur hefur
orsakað meiri umferð bíla og
aukin umferð hefur aftur lcitt
af sér meiri bilanir. Þess vegna
m.a. hefur verið meira að gera
á bílaverkstæðinu hjá mér í
vetur en undanfarna vetur.
Þetta sagði Skúli Pálsson bif-
vélavirki og eigandi Bílaverk-
stæðis Ólafsfjarðar í viðtali við
F.V.
Skúli tók við rekstri verk-
stæðisins árið 1970, en það
hafði verið rekið af öðrum frá
1958. Á verkstæðinu fram-
kvæmir Skúli alls kyns við-
gerðir. — Það má segja að hér
sé allt gert sem gera þarf við
bíla, sagði Skúli. Á litlum verk-
stæðum úti á landi er ekki
hægt að vera með neina sér-
hæfingu, svo ég tek að mér allt
frá dekkjaviðgerðum upp í
sprautun. Svo hef ég líka feng-
ist við pípulagnir og miðstöðva-
viðgerðir þegar lítið hefur ver-
ið að gera á verkstæðinu. Ann-
ars hefur veturinn í vetur ver-
ið óvenju góður, bæði vegna
snjóleysisins og vegna þess að
ég fékk heila ýtu í stórklössun
á þeim tíma sem vanalega er
daufastur.
Að sögn Skúla fylgja því
ýmsir erfiðleikar að reka fyrir-
tæki sem þetta á afskekktum
stað úti á landi. — Útvegun
varahluta er einna erfiðasti
þátturinn, sagði Skúli. Sam-
göngur eru oft erfiðar vegna
snjóa. Þá er flutningskostnaður
mikill og símakostnaðurinn gíf-
urlegur. Oft þarf að hrinigja í
mörg umboð og verslanir í
Reykjavík til að útvega vissa
tegund varahluta og þá hrúgast
kostnaðurinn upp. — Hjá mínu
fyrirtæki getur símakostnaður-
inn einn orðið upp undir 60
þúsund krónur fyrir ársfjórð-
unginn. Ég held að meiri jöfn-
uður fengist í þetta ef fasta-
gjöldin væru hækkuð svolítið
og umframsímtölin lækkuð til-
svarandi sagði Skúli.
Yfir sumartímann er oft mik-
il umferð um Ólafsfjörð og
fylgja því mikil verkefni fyrir
bílaverkstæðin tvö. — Ég er
heppinn með staðsetningu á
Skúli Pálsson.
verkstæðinu, sagði Skúli, því
það stendur við hliðina á bens-
ínstöð og margir eiga leið þar
um. Á sumrin er mikið um
dekkjaviðgerðir og lagfæringar
á púströrum. Ég er núna að fá
nýja affelgunarvél, sem kemur
til með að létta mikið undir
hjá mér, því það er púl að fást
við þessi dekk með höndunum.
Ég er líka að láta mig dreyma
um að koma upp stærri smur-
gryfju en ég hef núna, þannig
að ég geti tekið allar stærðir
af bílum í smurningu. Það er
ekki ákveðið hvenær það verð-
ur, en ég vona að það geti orð-
ið í náinni framtíð, sagði Skúli
Pálsson að lokum.
Bílaverkstæði
Dalvíkur
Viðgerðir á
bílum,
bátum
og
landbúnaðarvélum.
Smurstöð:
ESSO
benzín og smur
olíur.
Varahlutir í
bíla
og
landbúnaðarvélar.
Hjólbarðar,
verkfæri
og fleira.
Símar 61122
61123
Dalvík
FV 3 1976
65