Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 75
Hagræðinffarmál:
Hvað er rekstrarráðgjöf ?
*
I eftirfarandi grein er leitazt við að skýra fyrir lesendum þá ráðgjafar-
starfsemi sem fáanleg er orðin á sviði stjórnunar og reksturs
A undanförnum árum hafa rekstrarráðgjafar boðið forstöðumönnum fyrirtækja og stofnana
þjónustu sýna við að yfirfara stjórnun og rekstur viðkomandi aðila og gera tillögur um úr-
bætur. Sérstök þjónustufyrirtæki hafa verið sett á laggirnar til að þjóna þessu hlutverki og
er Hagvangur lif. í Reykjavík meðal þeirra. Sigurður R. Helgason, framkvæmdastjóri Hag-
vangs svarar í eftirfarandi grein nokkrum spurningum um rekstrarráðgjöf.
Við getum sagt að í fáum
orðum sé rekstrarráðgjöf ráð-
gjöf manna á sviði stjórnunar
og reksturs. Viðskiptavinir
okkar eru stjórnendur fyrir-
tækja og stofnana, sem eiga við
ýmis konar stjórnunar- og
rekstrarleg vandamál að
stríða. Haganlegast er að
nefna dæmi.
a) Almenn stjórnunarvanda-
mál.
Skipulag fyrirtækisins,
stefnumörkun og áætlana-
gerð.
b) Bókhald og rekstrar-
eftirlit.
Rekstrar- og fjárhagsbók-
hald, rekstraráætlanir, verð-
útreikningar, kostnaðareftir-
lit, rekstrareftirlitskerfi og
hagkvæmniskannanir vegna
fjárfestinga.
c) Framleiðsla og birgðir.
Hagræðing véla og starfs-
fólks í framleiðslu, fram-
leiðslu- og birgðaáætlanir,
aðgerðarrannsóknir og
launakerfi.
Sigurður
Helgason,
fram-
kvæmda-
stjóri Hag-
vangs, sem
svarar
sp'urn-
ingum
Frjálsrar
verzlunar
um hag-
ræðingar-
mál.
d) Sala.
Athuganir á orsökum sölu-
tregðu, markaðskannanir,
mótun sölustefnu og sölu-
aðgerða, innrétting verzlana
o. fl.
e) Tölvur.
Kerfiskannanir og mótun
kerfa, mat á hagkvæmni og
aðstoð við mótun tölvu-
reksturs.
f) Mannahald.
Val, þjálfun og mat á starfs-
liði.
g) Námskeið.
Gerð og skipulag námskeiða
fyrir atvinnugreinar og
fyrirtæki.
Hvernig metur stjórnandi fyr-
irtækis þörfina fyrir ykkar
þjónustu?
Nefna má þrjár helztu á-
stæður þess að stjórnendur
leita okkar:
a) Þörf starfskrafta um tak-
markaðan tíma.
Ákveðin vandamál ber að
höndum og leiða af sér þörf
fyrir starfsfólk um skemmri
tíma. Starfslið fyrirtækisins
hefur mögulega fullnægjandi
þekkingu og reynslu til að
bera til lausnar vandamálinu
— en hins vegar ekki tíma.
Fyrirtæki og stofnanir leiðast
stundum út í, að ráða sér fasta
starfsmenn við slíkar aðstæður
og sitja síðan uppi með ónýta
starfskrafta. Nefna má sem
FV 3 1976
75