Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 89

Frjáls verslun - 01.03.1976, Page 89
AUGLÝSING J.P. IIMIMRÉTTIINIGAR: lltvegum allt sem kaupandinn óskar í J. P. innréttingum, Skeif- unni 7, Reykjavík, hafa verið smíðaðar eldhúsinnréttingar frá því árið 1962. Innrétting- arnar eru framleiddar í stöðl- uðum einingum, en einnig er hægt að fá sérsmíðaðar inn- réttingar. Reynt er að anna öllum fyrirspurnum um sér- smíði. Nóg er til á lager af stöðl- uðum eldhúsinnréttingum og afgreiðslufrestur á þeim því nær enginn, en hins vegar hef- ur afgreiðslufrestur á sérsmíði verið u. þ. b. 2V2-3 mánuðir. Eldhúsinnrétting með kústa- skáp, hólfi fyrir ísskáp og elda- vél, plastáferð á hurðum eða spónalögðum viði fyrir eldhús- innréttingu, sem er 2.50 m á hvorum vegg kostar kr. 316.000. Er þetta miðað við staðlaða inn- réttingu. Þær viðartegundir sem eru fáanlegar eru eik, tekk og maghoný. Sams konar eldhúsinnrétting með blýlögðu gleri kostar kr. 385.000, en innrétting með bogadregnum hurðum kostar kr. 400.000. Innréttingar með bogadregn- um hurðum eru fáanlegar úr bæsuðum viði t. d. eik og kost- ar þá kr. 420.000. Innrétting með rammahurðum með blý- gleri í efri skápum kostar kr. 490.000. Verð þetta er miðað við innréttingu af stærðinni 2.50+2.50 m. í öllum ofan- greindum verðum er uppsetn- ing innifalin. Eins og að ofan greinir er hægt að fá mismunandi viðar- tegundir og einnig er hægt að fá mismunandi gerðir og liti af plasti á borð og á hurðir. Hafi viðskiptavinurinn sérstakar óskir er reynt að framleiða innréttinguna samkvæmt þeim. J.P. innréttingar framleiða auk eldhúsinnréttinga, fata- skápa, innréttingar í baðher- bergi, sólbekki og skrifstofu- innréttingar. Þar að auki bjóða þeir upp á margs konar vegg- klæðningar, loftklæðningar og innihurðir, sem fluttar eru inn frá Portúgal. Fyrirtækið reynir að smíða og útvega allt sem kaupandinn óskar. FV 3 1976 89

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.