Frjáls verslun - 01.03.1976, Side 91
AUGLÝSING
SAMVIIMIVUTRÉSMIDJIJRIMAR:
Mismunandi gerdir,- mismunandi
viðartegundir
Samvinnutrésmiðjurnar eru
samstarfsfyrirtæki trésmiðja
3ja Kaupfélaga á Suðurlandi,
Kaupfélags Árnesinga, Kaupfé-
lags Rangæinga og Kaupfélags
Skaftfellinga. Elsta trésmiðjan
hcfur staMað í um 30 ár og hafa
trésmiðjurnar aðallega fram-
leitt innréttingar og hurðir.
Fyrir þremur árum hófst
fyrrnefnt samstarf, markmiðið
með samstarfinu er að ná hag-
kvæmara verði á framleiðsl-
unni með hagkvæmri skiptingu
verkefna, sérhæfingu og stöðl-
un.
Samvinnutrésmiðjurmar fram-
leiða: Eldhúsinnréttingar, úti-
og innihurðir, póstkassa, fata-
skápa, bólstruð húsgögn og
skrifstofuhúsgögn.
Útihurðirnar eru fáanlegar í
mismunandi gerðum og viðar-
tegundum, en innihurðirnar
hægt að fá í einni gerð i mis-
munandi viðartegundum eða
tilbúnar undir málningu. Aðal-
lega er um staðlaða framleiðslu
að ræða.
Þar sem trésmiðjurnar eru
úti á landi, hefur verið sett upp
útstillinga- og söluskrifstofa að
Suðurlandsbraut 18, Reykja-
vík. Húsbyggjendur geta þarna
séð fjölmargar gerðir innrétt-
inga og hurða og eru gerð tilboð
í tréverk, hvort heldur er í ný-
byggingar eða eldri íbúðir. Öll
tilboð eru með söluskatti og
flutningskostnaði. Ef pakka
þarf inn vörum vegna sending-
ar út á land, þarf að greiða
fyrir það aukalega.
Framleiðsla og sala á inni-
hurðum úr gullálmi hefur ver-
ið hvað mest og er verð á slíkri
hurð kr. 26.000. Innifalið í verð-
inu er söluskattur og sending-
arkostnaður að byggingarstað í
Reykjavík eða á flutningamið-
stöð.
Útihurð er hægt að fá frá um
kr. 65.000. Þær eru fáanlegar
með gleri, heilar, með fulning-
um eða panel og með bréfalúgu.
Hvað sérstaka meðhöndlun
og hreinsun hurðanna varðar,
þurfa hurðir frá 3K litla með-
höndlun og hreinsun. Það er
nægilegt að nota rakan klút, en
forðast öll kemísk þvottaefni,
því sum þeirra efna ganga beint
inn í lakkið.
Afgreiðslufrestur er um 8
vikur, en ekki er séð um isetn-
ingu hurðanna. Hins vegar
benda 3K kaupendum á aðila,
sem setja upp hurðir og einnig
tekur fyrirtækið að sér að
semja við þessa aðila, þannig
að þjónusta við kaupanda hvað
uppsetningu varðar er alltaf
fyrir hendi.
Greiðsluskilmálar eru mögu-
legir og er ákveðið greiðslufyr-
irkomulag á allri framleiðslu
trésmiðjanna.
Markaðsþáttur FRJÁLSRAR VERSLUNAR kynnir vörur og vörumerki.
Birtir ítarlegar, áreiðanlegar og tæknilcgar upplýsingar, sem gefa kaupcndiiim
meiri valkosti.
Markaðsþáttur FRJÁLSRAR VERSLUNAR — ný aðferð, sem skilar árangri.
FRJÁLS VERZLUN — kynningardeild — Laugavegi 178.
FV 3 1976
91