Frjáls verslun - 01.07.1978, Side 9
Ragnar Kjartansson, er nýlega tekinn við
stöðu hjá Hafskip hfsem framkvæmdastjóri
fjármála- og skipulagssviðs fyrirtækisins.
Framkvæmdastjórar við fyrirtækið eru tveir, og
hefur Ragnar með höndum stjórnun fjármála,
starfsmannahald, skrifstofurekstur, trygginga-
mál, umsjón með umboösmannakerfinu innan
lands og utan, og umsjón með áætlunargerö-
um, svo dregin sé upp einhver mynd af starfinu.
Ragnar gat þess að Hafskip ætti nú 5 skip, en
auk þess eru í siglingum fyrir fyrirtækið ýmis
leiguskip. Vikulega er siglt á hafnir á Norður-
löndunum, — Kaupmannahöfn, Gautaborg og
Fredriksstad — og á 10—12 daga fresti á
hafnirnar í Ipswich í Englandi, Hamborg og
Antwerpen í Belgíu, auk reglubundinna sigl-
inga til Póllands og Finnlands.
Ragnar Kjartansson er fæddur í Reykjavfk 4.
marz 1942. Hann starfaði sem framkvæmda-
stjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna frá því
1963—1970. 1970 átti hann aðild að stofnun
hlutafélagsins Kaupstefnan og var fram-
kvæmdastjóri þess fyrirtækis 1970— 71, en árið
1971 varð Ragnar aðstoðarframkvæmdastjóri
Olíufélagsins Skeljungs. Því starfi gegndi hann
allt þar til hann tók við framkvæmdastjóra-
starfinu hjá Hafskip.
Jón Sigurðsson, tók við starfi ritstjóra dag-
blaðsins Tímans 1. júlí s. I. Hann er annar
tveggja ritstjóra blaðsins. Ritstjórarnireru báðir
ábyrgöarmenn blaðsins, og skipta með sér
skrifum leiðara og ritstjórnardálka.
Jón sagði að sitt starf væri m. a. fólgið í dag-
legu samstarfi við fréttastjóra og fréttamenn,
að annast daglega fundi eftir þörfum, sjá um
aðsendar greinartil blaðsins, auk margra ann-
arra starfa, sem ritstjóri dagblaðs þarf að sinna
eins og símtölum, ýmsum erindum, sitja fundi,
auk þess sem það er hlutverk ritstjóra að
ákveöa hvaða greinar skuli birtar í blaðinu.
Jón Sigurðsson er fæddur 23. ágúst 1946 í
Kollafiröi á Kjalarnesi. Stúdent varð hann frá
máladeild Menntaskólans í Reykjavík 1966, og
lauk B. A. prófi í íslenzku og sagnfræði frá Há-
skóla íslands 1969. Allt frá stúdentsprófi
stundaði hann kennslu við ýmsa skóla.
Á árunum 1970— 72 var Jón lektor í íslenzku
við háskólana í Lundi og Gautaborg í Svíþjóö,
en hann hafði haldið utan til framhaldsnáms.
Eftir heimkomuna kenndi Jón við Mennta-
skólann í Reykjavík. Hann varð einnig lektor í
íslenzku fyrir erlenda stúdenta við Háskóla ís-
lands og gegndi jafnframt þeirri stöðu, starfi
skrifstofustjóra Máls og menningar. Síðar
gerðist hann framkvæmdastjóri við Menning-
arsjóð og bókaútgáfu Menningarsjóðs í tvö ár,
eða þar til hann varð ritstjórnarfulltrúi Tímans.
Ritstjórnarfulltrúi var Jón í eitt ár, er hann varð
ritstjóri.
9