Frjáls verslun - 01.07.1978, Qupperneq 43
Séð yfir afgreiðslusalinn á blómamarkaðnum í
Honselersdijk. Á hverjum morgni fer þar fram
blómauppboð og þegar vagnar með blóma-
kössunum hafa farið í gegnum uppboðssalinn
er þeim ekið til stöðvar kaupandans á þessu
geymslugólfi. Þar eru blómin sett um borð í
vöruflutningabíla, sem flytja þau til kaup-
manna í Hollandi eða erlendis, eða út á flugvöll
til sendingar til f jarlægra staða.
blómunum áfram á teinum út úr
sjálfum uppboössalnum, merktir
kaupandanum, og skömmu síöar
er búiö að koma blómunum á
vöruflutningabíla, sem flytja þau í
búöir í Hollandi eöa víðsvegar um
Evrópu, og út á fjugvöll þaðan sem
þau eru send til enn fjarlægari
landa. Vestur-Þjóöverjar kaupa
langmest af hollenzkum blómum
af erlendum kaupendum. Reyndar
eru það 80% af öllum 1. flokks
þlómunum sem seld eru úr landi.
Flestir blómakaupmennirnir hafa
eigin skrifstofur, birgöageymslur
og pökkunarstöö á blómamark-
aðnum. Skipulagsmál markaðar-
ins eru í höndum stjórnar, sem
meðlimir samvinnufélagsins kjósa,
en alls starfa hjá markaðnum um
350 manns. Meðlimirnir, þ. e. a. s.
blómaframleiöendur greiða um
4% af sölu á uppboðinu í þóknun
til markaðarins. Þeir hafa greiðan
aðgang að þjónustu ýmissa fyrir-
tækja, sem reka skrifstofur í mark-
aðsbyggingunni eins og t. d.
banka, tryggingarfélaga, flutn-
ingafyrirtækja, bókhaldara og
endurskoðenda.
Salan á blómauppboðinu í Hon-
selersdijk nemur um 1.5 milljón
gyllina á degi hverjum, en heildar-
veltan var tæpar 500 milljónir í
fyrra. Á ræktunarsvæðinu, sem
stendur að markaðnum, eru gróð-
urhús fyrir blómarækt 1400 hekt-
arar.
43