Frjáls verslun - 01.03.1979, Qupperneq 23
að hefja flug til fleiri bandarískra
borga?
— Ákvörðunin um farþegaflug
til Baltimore var tekin vegna þess
að vænlegt þótti að sækja þangað
farþega, þar sem hér var um stórt
markaðssvæði að ræða, sem áður
hafði verulega þýðingu, en vegna
samkeppni var ekki hægt lengur
að ná þaðan flutningum í gegnum
New York. Við teljum að ákvörð-
unin um að hefja flug þangað hafi
verið tímabær. Hins vegar er því
ekki að neita, að heldur hægar
hefur gengiö að vinna upp flutn-
inga þaöan en ráð var fyrir gert í
byrjun. Við erum samt sem áður
bjartsýnir á flutninga þaðan á
komandi sumri. Ekki er fyrirhugað
að hefja flug til fleiri borga í
Bandaríkjunum í bili.
— Flugleiðir hafa nýverið tekið
í notkun DC-10 breiðþotu og ný-
lega var ákveðið að festa kaup á
einni DC-8 þotu til viðbótar þeim
sem fyrir eru. Þarna er um að
ræða aukningu í sætaframboði,
sem ekki virðist í fljótu bragði vera
í rökréttu samhengi við ástand og
horfur í flugrekstrinum.
— Á sumri komanda verður fé-
lagið með þrjár DC-8 vélar í notkun
til viðbótar DC-10 vélinni. Þarna er
ekki um mikið viðbótarsætamagn
að ræða, þar sem félagið var með
fimm DC-8 vélar í rekstri sumarið
1978. Viðbótarsætamagn er því
tiltölulega lítið og felst þá aöallega
í því, að um nýja flugleið er að
ræða, þ.e.a.s. leiðina til Baltimore.
— Hverju spá fróðustu menn
um þróunina á næstu mánuðum í
fluginu yfir N-Atlantshafið?
v— Varöandi útlitið á næstu
mánuðum, þá er erfitt að spá um
það með vissu. Þó má segja, að
líklegt sé, aö ferðalög íslendinga
dragist eitthvað saman vegna
efnahagsástandsins, sem nú ríkir í
landinu. Útlit er fyrir að flutningar á
Atlantshafsleiðum verði ekki minni
en á síðastliönu ári. Þó er þar blika
á lofti, en það er staða eldsneytis-
mála, sem skapar nokkra óvissu.
Óhjákvæmilegt er að fargjöld verði
að hækka í kjölfar hækkaðs elds-
neytis en á þessu stigi er erfitt að
spá um afleiðingar þess á far-
þegafjöldann.
— Hafa forráðamenn Flugleiða
ástæðu til að óttast um réttindi
félagsins, sem það hefur hingað
til notið í Luxemborg? Fréttir eru
sagðar af áhuga Luxemborgar-
Áð á Keflavíkurflugvelli.
innanlandsflugs. Ástæöurnar fyrir
hallarekstri eru tvenns konar,
annars vegar áhrif innanlands og
hins vegar utanaðsteðjandi áhrif.
Óðaverðbólgan hér á (slandi
leikur okkur afar grátt. Við erum í
svipaðri aðstöðu og útflutningsat-
vinnuvegirnir en njótum að sjálf-
sögðu engra styrkja eða milli-
færslna eins og sumir aörir at-
vinnuvegir hér njóta. Það má segja
að umfram- eða viðbótarkostn-
aður okkar vegna óðaverðbólg-
unnar skipti hundruðum milljóna
króna á ári.
Fargjöldum í innanlandsflugi er
haldiö niöri, þar sem sú starfsemi
er háö verðlagsákvæðum. Á
síðastliðnum fjórum árum héfur
raunverulegt tap félagsins á þess-
ari starfsemi numið um 1 milljaröi
kr. á núgildi peninga.
Hvað Atlantshafsflugi viðvíkur,
þá er það staðreynd, að sam-
keppni þar hefur farið mjög vax-
andi með tilkomu mjög frjálslyndr-
ar stefnu Bandaríkjanna í flugmál-
um, sem leitt hefur það af sér, að
fjöldi nýrra félaga hefur fengið leyfi
til flugs á hafinu jafnframt því, sem
fargjöldum hefur verið þrýst niður
á viö. Þar sem taprekstur hefur
veriö á öllum flugleiðum er ekki um
það að ^pæðá að tap hafi verið
unnið upp, þ.e.a.s. tap á einni leið
unnið upp með hagnaði á annarri
leið eða öðrum þætti í flugrekstr-
inum.
— Var það tímabær ákvörðun í
Ijósi þessarar útkomu að hefja
flug til nýs áfangastaðar vestan
hafs, Baltimore í Bandaríkjunum,
á sl. hausti? Er ef til vill fyrirhugað
21