Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 28
meðferð plaströra og var fyrsta
námskeiðið haldið í byrjun árs
1976. Segja má að upp frá því hafi
plastið tekið völdin, ef svo má að
orði komast, og fer notkun þess
sívaxandi í byggingariðnaði. Þau
rör sem einkum henta til frá-
rennslis- og vatnslagna eru úr
polyvinylchloride eða PVC en inn-
anhúsvatnslagnir eru einnig lagð-
ar með polyprophylen plaströrum.
Þrátt fyrir að tvö stór fyrirtæki
framleiði þessi rör, en það eru
Reykjalundur og Hampiöjan er
talsvert flutt inn og samkeppnin
hörð.
sem einnig framleiðir sundlaugar,
fiskeldisker og fiskvinnsluáhöld úr
trefjaplasti svo eitthvað sé nefnt. Á
Akranesi er einnig farið að fram-
leiða plastbáta. I Hafnarfirði er
fyrirtækið Polyester hf. farið að
framleiöa bílahluti úr trefaplasti
svo sem bretti, vélarlok, vindflipa
(spoilers) og jafnvel heilu sam-
stæðurnar auk þess sem þeir
framleiða vinnsluker fyrir fiskiðnað
og sláturhús.
Plastiðnaður er víðtækt hug-
tak
Eins og lesendur er farið að gruna
þá er plastiðnaður og plastfram-
leiðsla orðin veigamikil fram-
leiðslugrein og útilokað að ekki
gleymist eitt og annað í yfirlitsgrein
á borð viö þessa. Það er ekki hægt
aö skilja svo við þetta efni að ekki
sé bent á eitthvað af því sem ekki
hefur veriö fjallað um hér að fram-
an. Má þar nefna leikfangafram-
leiðslu og alls konar skrifstofuvör-
ur og búsáhöld sem framleidd eru
af Reykjalundi og Múlalundi. Að
minnsta kosti eitt fyrirtæki er ein-
göngu í plasthúðun og fjölmörg
vinna úr plastefnum t.d. máln-
ingarverksmiðjurnar og ýmsar
efnaverksmiðjur, skiltagerðir o.fl.
Austur á Neskaupstað er t.d.
fyrirtæki, Nesplast hf. sem fram-
leiðir plastbönd fyrir fiskiönað en
þar hefur verið við vissa byrjunar-
örðugleika aö ræða á tæknilega
sviðinu sem nú hefur tekizt að
leysa og gera má ráð fyrir að það
fyrirtæki eigi eftir að vinna markað
af erlendum aðilum og þannig
flytja verðmætasköpun inn í landið
á næstu árum. Þá má nefna að
Jóhannes Pálsson á Hvolsvelli, en
hann er óþreytandi uppfinninga-
maður á sviði plastframleiðslu og
rekur þar fyrirtækið Bjallaplast er
nú að hefja útflutning á hugmynd
sinni að meðalaglösum með ör-
yggisloki sem þegar eru komin á
markaðinn hér innanlands. Það
bendir óneitanlega margt til þess
að plastiðnaður sé kjörinn vett-
vangur þeirra sem hafa hugmyndir
og sköpunarhvöt og þora að slá til.
Trefjaplastið er enn
aðeins hálfunninn akur
Glertrefjastyrkt polyesterplast,
sem hér er almennt kallað trefja-
plast, hefur freistaö margra enda
er sú grein plastiðnaðar á hraðri
uppleið hérlendis. Úr þessu efni er
hægt að framleiöa óteljandi hluti
allt á milli skipa og húsgagna. Það
er raunar hugmyndaflugiö fremur
en samkeppnin sem vantar á
þessu sviöi. Bátasmíði úr trefja-
plasti er þegar orðin veruleg at-
vinnugrein og a.m.k. 4 fyrirtæki
framleiða plastbáta úr trefjastyrktu
polyester en það er Skipasmíða-
stöð Guðmundar Lárussonar á
Skagaströnd, Mótun hf. í hafnar-
firði og Trefjaplast hf. á Blönduósi
Polyester h.f. í Hafnarfirði er farið að framleiða bílahluti úr trefjaplasti.
26