Frjáls verslun - 01.03.1979, Síða 41
Aö þessum málefnum vinna af hálfu ríkisins sér-
stakt úrval embættismanna úr starfsliði MOF og MITI
ásamt starfsmönnum efnahagsþróunarskrifstofunnar
(sem sett var á laggirnar 1955) og landsbyggðar-
skrifstofunnar (sem stofnuð var 1974). Stefnan er
mörkuö af þessum tiltölulega fámenna hópi yfir-
burðamanna sem hafa sér til aðstoðar hóp aðstoðar-
manna.
Áhugi og sérhæfni þessa hóps hefur skapað stöð-
uga langtímastefnu í efnahagsmálunum og styrkt
stööu japanskra fyrirtækja. Mistök hafa þó átt sér
stað, en samt sem áður er árangurinn umtalsverður.
Og þótt vald þessa úrvalshóps hafi að hluta verið
bundið í lögum (sem þeir sjálfir hafa samið) er mesta
valdið fólgið í góðum ráðum og trausti því sem þeir
njóta.
Úrvalsmennirnir koma til starfa hjá ráðuneytunum
23 ára gamlir og starfa þar til 50 ára aldurs, en þá
draga þeir sig í hlé, helga sig stjórnmálum eða gerast
starfsmenn einkafyrirtækja. Umsækjendur um að
komast í þessa úrvalssveit verða að þreyta mjög þung
inntökupróf og komast í þau aðeins bestu nemendur
bestu háskólanna. 80% þeirra sem að komast eru úr
Tokyo-háskóla, sem ertalinn besti háskóli Japan. Að-
gangur að þeim háskóla fer einvörðungu eftir eink-
unnum og þar sem umsækjendur verða auk þess að
þreyta mjög erfitt inntökupróf, komast aðeins þeir
nemendur sem bæði eru vel gefnir og vel lesnir.
Erfiðasta deild Tokyo-háskóla er lagadeildin. Bestu
nemendur hennar fara í inntökupróf í „úrvalsdeild"
ráðuneytanna. Þeir sem standast hin skriflegu próf
eru teknir í viðtöl til að ganga úr skugga um að við-
komandi hafi þá persónulegu eiginleika sem krafist
er.
Ekki eru launin eða fríðindin eftirsóknarverð í sjálfu
sér, þar sem þau eru lægri en í mörgum einkafyrir-
tækjum og starfsaðstæður ekki heldur eins góðar og
hjá einkafyrirtækjunum. Yfirburöir þessara úrvals-
starfsmanna ráðuneytanna, úr skólakerfinu, fremur
en staða þeirra, veitir þeim nauðsynlegt vald til að
framfylgja áætlunum sínum. Raunar jaðrar framkoma
þeirra gagnvart yfirmönnum fyrirtækjanna viö hroka.
En sé yfirmönnum fyrirtækjanna skapraun af þessum
mönnum er óhætt að segja að gremjan sé yfirleitt
virðingu blandin.
Stefnumótun í iðnaði.
Sú stofnun sem valdamest er í eftirliti með iönaö-
inum er MITI. Hagsmunir fyrirtækjanna mætast hins-
vegar í Keidanren-byggingunni í Tokyo. Þar hittast
helstu forráðamenn fyrirtækjanna á fundum til að
ræða vandamálin sem við er að glíma hverju sinni.
( Japan er mikið um allskyns samtök fyrirtækja,
bæði formleg og óformleg, en áhrifamestu samtökin
eru Keidanren og það eru þau sem eiga hvað mest
japanskra fyrirtækja á heimsmarkaöi
sem lofa góðu á alþjóðlegum markaði
39