Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 49
flutningur frá Japan aukist um 619%
Viðtal við Stefán Gunnlaugsson, deildarstjóra í viðskiptaráöuneytinu um þróun viðskipta
milli Islands og Japans á undanförnum árum
arútflutningsins. Orsök þess var í
raun og veru offramleiðsla eða of-
framboö framleiöslulandanna.
Árió 1976 nemur hann 1.5% heild-
arútflutningsins, 1977 1,7% og
1978 1.6%.
Auk þeirra útflutningsvara, sem
áður hafa verið nefndar og farið
hafa á Jaþansmarkaö, má nefna
ullar- og þrjónavörur, lagmeti, ál,
skinn og raekju. Þessar vörur eru
þó lítill hluti í heildarútflutningum
til Jaþan enn sem komið er, nema
álflutningurinn á s.l. ári, sem nam
að verðmæti 306 millj. ísl. kr. eða
11.1% af heildarútflutningnum til
Jagan það ár.
F.V.: — Um hvað munar mest í
innflutningi frá Japan nú, hvaða
sæti skipar Japan af seljendum
vöru til íslands og um hvaða upp-
hæðir hefur verið að tefla síðustu
árin í innflutningi frá Japan?
Stefán: — Lang stærsti vöru-
flokkurinn í innflutningnum frá
Japan er nú bifreiðar og önnur
flutningatæki. Þar næst koma fjar-
skiptatæki, þ.e. sjónvörp, hljóm-
flutningstæki o.þ.h.
Japanir voru níundu í röðinni
þeirra þjóða, sem fluttu inn til ís-
lands á s.l. ári, miðað við verð-
mæti.
Árið 1975 nam verðmæti inn-
flutningsins um 1734 millj. ísl. kr.,
1976 um 3481 millj. ísl. kr., 1977
um 3852 millj. kr., 1978 um 6248
millj. ísl. kr.
Á tímabilinu 1969 til 1978 hefur
aukningin orðið um 619% um-
reiknað í Bandaríkjadollar á
meðalgengi hvers árs fyrir sig.
F.V.: — I hvaða sæti er Japan
af kaupendum íslenskra afurða,
hvaða vörur eru aðallega seldar til
Japan og hvert er verðmæti
þeirra?
Stefán: — Japanir eru
sautjándu í röðinni þeirra þjóöa,
sem mest keyptu af okkur á árinu
1978.
Eins og áður hefur verið drepió
á, eru loðnuafuröir og frystar
hvalafurðir helstu útflutningsvörur
okkar á Japansmarkað og hafa
raunar verið frá því útflutningur til
Japans hófst. Að því er snertir
hvalafurðirnar hafa viðskiptin ver-
ið stöðug og vaxandi, m.a. vegna
aukinnar nýtingar aflans til vinnslu
í frystingu, eins og áður hefur verið
vikið að. Verðmæti þeirra námu
um 432 millj. ísl. kr. 1976, um 628
millj. ísl. kr. 1977 og um 1105 millj.
ísl. kr. 1978.
Loðnuviðskiptin hafa aftur á
móti gengiö í sveiflum. í því sam-
bandi skal bent á, að áriö 1976
nam verðmæti frystrar loðnu til
Japans um 529 millj. ísl. kr., 1977
um 610 millj. ísl. kr. en 1978 aðeins
um 22 millj. ísl. kr. Þessi mikli
samdráttur í útflutningnum í fyrra
varð vegna þess, að loðnan gekk
og sú loðna, sem markaðurinn vill
fyrst og fremst kaupa í miklum
mæli á viöunandi verðum, var ekki
fyrir hendi, en hann sækist fyrst og
fremst eftir hrygnum af vissum
stærðum, þyngd, lengd, hrogna-
innihaldi o.s.frv., þ.e. markaöurinn
gerir ákveönar og mjög strangar
stærða- og gæðakröfur. Og eins
og nú horfir á yfirstandandi vertíð,
er svipað upp á teningunum, hvað
það snertir að ekki verður hægt að
^uppfylla gerða samninga um
hrognasölu.
Aftur á móti hefur tekist aö þróa
og bæta loðnuhrognavinnsluna
hérlendis svo, að hún hefur stöð-
ugt farið vaxandi, eins og sést á
því, að áriö 1976 er verðmæti
loðnuhrognanna til Japans um
141 millj. ísl. kr., 1977 um 360 millj.
ísl. kr. og 1978 um 1094 millj. fsl.
kr.
Annars er athyglisvert, að á
meðan innflutningurinn frá Japan
hefur aukist um 619% á árunum
1969-1978, eins og áður hefur
verið greint frá, hefur útflutning-
urinn aukist um 8548% á sama
tíma. Eru þá verðmætin umreikn-
uð í Bandaríkjadollara á meðal-
gengi hvers árs.
F.V.: — Hafa Japanir sýnt
áhuga á að auka fjölbreytni í
vörukaupum sínum frá Islandi?
Eigum við að leggja áherslu á
kynningu annarra vörutegunda en
nú eru seldar á Japansmarkað?
Stefán: — Já, vissulega hafa
Japanir sýnt áhuga fyrir kaupum á
öðrum vörum en hér á undan hafa
aðallega verið til umræöu, og eru á
boöstólnum. Það sem oftast hefur
ráðið úrslitum, þegar ekki hefur
gengið saman milli kaupanda og
seljanda undir slíkum kringum-
stæðum, hafa verið söluverðin.
Slíkum viðskiptamöguleikum er
haldið vakandi bæði af kaupend-
um í Japan og seljendum hér t.d.
meö sendingu sýnishorna og öðr-
um athugunum. Ég hygg að út-
• Japanir voru íníunda sæti afþeim þjóðum, sem
fluttu inn til íslands á sl. ári, miöað við verð-
mæti.
• Japanir eru sautjándu í röðinni þeirra þjóða,
sem mest keyptu af okkur árið 1978.
• fslendingar eru brautryðjendur í sölu loðnu-
hrogna til Japan.
• Langstærsti vöruflokkurinn í innflutningi frá
Japan er nú bifreiðar og önnur flutningatæki.
47