Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 55
þessu tilviki væri afgreiðslufrestur
frá Japan of langur, og þyrfti þar af
leiðandi að panta of mikið í hvert
skipti. Enginn gæti síðan sagtfyrir
um söluna, og því dýr lager að
liggja með í langan tíma.
Mikil sala
Nýlega keypti fyrirtækið 500 fm
húsnæði í Rauðagerði, og er það
eingöngu ætlað undir varahluta-
lager, en auk lagers í umboðinu er
stór lager í Tollvörugeymslunni,
þar sem m.a. allir árekstrarvara-
hlutir í ákveðinn fjölda bíla af
hverri tegund eru ávallt fyrir hendi.
Það tekur síðan 2-3 daga að leysa
hlutina út. í Reykjavík eru 2 bíla-
verkstæði sem hafa sérhæft sig í
viðgerðum á Datsun og Subaru
bílum, en auk þess eru slík við-
gerðaverkstæði dreifð um allt
land. Á sl. ári tók fyrirtækiö í notk-
un eigin tölvu, sem hefur að
geyma fjárhag fyrirtækisins og
varahlutalager. Talvan hefur líka
auðveldað mjög að halda vara-
hlutalager í sem bestri nýtingu
miðað við peninga. Helgi Ingvars-
son sagði aö salan á Datsun og
Subaru færi jafnt og þétt vaxandi,
og væri búið að selja um 180 bíla
það sem af væri þessu ári. Auk
Ingvars helgasonar og fjölskyldu
vinna hjá fyrirtækinu 10-12 manns.
Charade slær í gegn á íslandi
Daihatsuumboðið Brimborg H/
F Ármúla 23 var stofnað í nóv-
ember 1976 og komu fyrstu Dai-
hatsubifreiðarnar til landsins
sumarið 1977. Þrátt fyrir að Dai-
hatsuumboðiö sé yrfgsta umboðið
fyrir japanskar bifreiðar hér á
landi, standa japönsku verksmiðj-
urnar á gömlum meiði.
Grunnurinn að rekstrinum í dag
var lagður 1907 með stofnun fyrir-
tækisins Hatsudoki Seizo Itd, sem
framleiddi vélar. Bifreiðafram-
leiðsla hófst síðan árið 1930. 1951
var nafninu breytt í Daihatsu
Kogyo Itd. og síðan 1974 í Dai-
hatsu Motors Co. Itd. Frá 1967
hafa veriö náin samstarfstengsl
milli Daihatsu Motor og Toyota
Motor í sambandi við ýmsa fram-
leiösluþætti.
I samtali við FV sögðu fram-
kvæmdastjórar Brimborgar Jó-
53